Réttur - 01.05.1964, Síða 64
128
U E T T U R
Aðeins á tímabilinu frá febrúar til marz 1961 drápu Portúgalar
50.000 manns í nýlenduhernaði sínum í Angola, sem enn heldur
áfram.
En þessi ógnarstjórn hins þokkalega bandamanns í Atlantshafs-
óandalaginu veldur ekki ritstjórn Morgunbiaðsins andvökum.
Blóðbað og einræði i Honduras — Bandarikin ó bak við.
3. október 1963 var gerð einræðisbylting af hernum í Honduras.
800 manns voru drepnir í þessu litla landi. Bak við blóðbaðið stóð
auðvald Bandaríkjanna. Aður hafði herstjórn Bandaríkjanna staðið
á bak við álíka aðgerðir í Salvador, Guatemala og Nicaragua.
,.Gorillur“ bandarísku herstjórnarinnar eru nú að grípa völdin í
liverju smálýðveldi Mið-Ameríku á fætur öðru, er leppar þeirra
sem fyrir voru tóku að gerast ótryggir undir áhrifum lýðsins.
Og bak við herforingjaeinræðið og blóðböðin standa auðhringir
Bandaríkjanna.
í Honduras er það United Fruit Company, ávaxtahringurinn al-
ræmdi, sem drottnar. Ilann ræður yfir 70% af efnahagslífi landsins.
Hringurinn er vellauðugur. Fólkið í Honduras er fátækt. íbúar
Honduras eru um 2 milljónir. 83% eru bændur, — jarðeignalausir
að mestu, vinna á hinum stóru búgörðum. United Fruit Company
er stærsti jarðeigandinn. 47% hins ræktaða lands tilheyrir bænd-
um, sem eiga meir en 100 hektara, og stórjarðeigendum. 68 stærstu
búgarðanna (hver yfir 2500 hektara) ná yfir 13% alls ræktanlegs
lands.
1959 voru meðaltekjur í Honduras 152 dollarar á mann (6536
isl. kr.) á ári. Meirihluti fólks líður skort. Aðalfæðan er maís og
bananar. 47% íbúanna hafa enga skó. 73% af íbúðunum er án
vatns. Barnadauði er mikill og fer vaxandi. Gróði ávaxtahringsins
er og mikill og fer vaxandi. Einræðisstjórninni var á komið til að
tryggja hann. Foringjar verklýðsfélaganna hafa verið fangelsaðir.
Kommúnistaflokkurinn starfar í banni laganna og skipuleggur bar-
áttuna gegn einræðinu og auðhringnum. Mikið af foringjum hans
er í fangelsum harðstjórnarinnar.
En alþýðan í Honduras sér fordæmi Kúbu fyrir sér. Hún veit að
völd harðstjóranna eiga sér kvöld um síðir.
;