Réttur - 01.11.1964, Blaðsíða 11
R É T T U R
203
það, sem íáum er gefið — trygga v.ini. Þar sem nafn Marx er þekkt,
þekkist einnig Friedrich Engels. Og þeir, sem þekklu til fjölskyldu
Marx, muna einnig nafn einnar göfugustu konu, sem uppi hefur
verið Héléne Demuth.
Þeir, sem rannsaka mannlegt eðli, verða ekki liissa þótt þessi
mikli baráttumaður skyldi jafnframt vera v.ingjarnlegastur og ljúf-
astur allra. Þeir munu skilja, að því aðeins gat hann hatað ákafl að
hann elskaði heitt; að hárbeittur penni hans gat rekið sálir til vít-
is ekki síður en Dante, af því að hann var einmitt sannur maður
og hjartagóður. Og þótt liúmor hans gæti verið meinhæðinn og
undan sviði sem hrennandi sýru, þá gat hann ekki síður verið
smyrsl á sár sorgmæddra og volaðra.
Móðir mín andaðist í desember 1881. Hann, sem aldrei hafði
skilið við hana í lífinu, fylgdi henni í dauðann fimmtón mánuð-
um síðar. Þau sofa vært eftir sv.iptibylji lífsins. Hafi hún verið
einstæð kona, þá má segja að liann „was a man, take him for all
in all, we shall not look upon his like again.“*
ERÁ þýddi.
*) „Já, þar var maður, þar var allt í einum,
og aldrei framar mun ég sjá hans maka.“
Shakespeare: „Hamlet I. ji. 2. atr. ÞýSing Matth. Joch.