Réttur - 01.11.1964, Qupperneq 42
234
R É T T U K
framfarir. 1 Alsír mynda áhangendur sósíalismans og áhangendur
fslams handalag — eins og í þjóðfrelsisbaráttunni — þrátt fyrir
heimspekilegan skoðanamun og trúarsannfæringu. Það væri hættu-
leg villa að láta heimspekideilur. sundra samstöðu byltingarafla.
*
Utanrikisstefna Alsír er fyrst og freinst miðuð við það að losna
sem fyrst algerlega úr klóm heimsvaldasinna. Það þýðir, með öðr-
um orðum sagt, að leita einkum halds og trausts hjá öðrum sósíal-
ískum ríkjum. Táknrænt dæmi um þessa utanríkisstefnu var för
Ben Bella til Sovétríkjanna, og það er verzlunarsamningum Alsír
við Sovétríkin að þakka, að nú verður hægt að byggja olíu- og
gashreinsunarstöðvar í Alsír, þrátt fyrir andspyrnu frönsku olíu-
félaganna. Tvö meginverkefnin út á við eru, annarsvegar að losna
við nauðungarsamningana við nýlendukúgarana og hinsvegar að
tryggja hagkvæm sambönd við sósíalísku löndin. Þetta á ekki að
skapa neina hindrun fyrir eðlilegum viðskiptaböndum eða menn-
ingartengslum milli Alsír og Frakklands, eða við önnur auðvalds-
lönd. Alsír vill v.insamleg samskipti við allar þjóðir, styður jákvætt
hlutleysi, friðsamlega sambúð, berst gegn kjarnorkustyrjöld og fyrir
afvopnun. I júlí í ár var boðað til ráðstefnu í Alsír þar sem lögð var
áherzla á að Miðjarðarhafslöndin væru kjarnorkuvopnalaust svæði.
Veigamesta og nærtækasta verkefnið framundan er að sameina
alla sósíalista á grundvelli þeirrar stefnuskrár sem samþykkt var á
þingi Þjóðfrelsisfylkingarinnar. Annaðhvort kemst þessi sameining
i kring og byltingin sigrar, eða ekkert verður af einingunni eða hún
kemur of seint — og byltingin er í hættu.
Hvað gæti hindrað slíka einingu? Innanlands eru það leyfar and-
kommúnismans sem stjórnað er af gagnbyltingaröflum andvígum
sósíalistískri stefnu flokksins og Ben Bella. Einnig stafar hætta af
eftirstöðvum allskonar einangrunartilhneiginga og fyrirbrigða. —
Erlendis frá eru það heimsvaldasinnar og þeirra erindrekar sem
reyna að sporna gegn einingunni.
Hinsvegar eru þau öfl sterk sem vinna að einingu, og þau eflast
fyrir þá árangra sem þegar hafa náðst í byltingunni. í flokknum eru
ciningaröflin yfirgnæfandi og vilji til að framkvæma stefnuskrána.
Þjóðfrelsisfylkingin er að endurskapast í forustuflokk verkalýðs-
.ins, leiðarhnoð uppbyggingar sósíalismans í Alsír, sem mun minka
hættuna á mistökum, gefa sérhverjum flokksfélaga verk að vinna
og búa í hendur honum vopnin í daglegri baráttu og starfi.
(Endursöj'n og útdráltur úr grein ejlir Bachir Hadj Ali
í World Marxist Review. ERA).