Réttur - 01.11.1964, Síða 43
MINNISBLÖÐ TOGLIATTIS
LÍ tímariti ítalska Kommúnistaflokksins birtust 5. september 1964 „Minnis-
blöð félaga Togliattis um vandamál alþjóðlegu verklýðslireyfingarinnar og
einingu liennar."
Minnisblöðunum fylgdi svohljóðandi formáli frá framkvæmdanefnd flokks-
ins undirritaður af Luigi Longo, sem nú hefur tekið við forystu flokksins eftir
íráfall Togliattis:
„Minnisblöð þau, sem við birtum um vandamál alþjóðlegu verklýðs- og
kommúnisla-hreyfingarinnar og einingu liennar, lauk félagi Togliatti við nokkr-
um klukkutímum áður en hann varð fyrir því örlagaríka sjúkdómsáfalli, er
bett enda á líf hans.
Textinn var vélritaður meðan Togliatti fór til Artek, lil þess að lieimsækja
alþjóðlegu ungherjabúðirnar. Hann ætlaði að athuga hið vélritaða handrit,
er hann kæmi aftur.
Félagi Togliatti reit sem kunnugt er greinar sínar með rnjög ákveðnu orða-
lagi og á skýru, nákvæmu máli og gerði venjulega mjög fáar eða engar breyt-
ingar, í hæsta lagi viðbætur á spássíunni. Þessi eiginleiki einkennir og síðustu
grein hans. Það er staðfest að fram til síðasta andartaks vann félagi Togliatti
af skýrleik og krafti. Sá sjúkdómur, er hindraði hann í að líta yfir minnis-
blöðin, eins og hann ætlaði, gerði engin boð á undan sér.
En við álítum að —- einnig án þessara loka endurskoðunar, — þá getum
við litið á texta þann, sem oss er eftirskilinn sem nákvæma tjáningu hugsana
hans um þau vandamál, er greinin fjallar um. Framkvæmdanefnd (stjórnmála-
nefnd) flokks vors tók þetta skjal, er félagi Togliatti hafði undirbúið, til
meðferðar með djúpri tilfinningu, staðfesti að „í því væru settar fram af
miklum skýrleik skoðanir flokks vors um núverandi ástand hinnar alþjóðlegu
hreyfingar kommúnista og ákvað að lýsa þetta álit vera álit flokksins.
Vér birtum því minnisblöð félaga Togliattis sem nákvæma tjáningu á afstöðu
flokksins til vandamála alþjóðlegu verkamanna- og kommúnistahreyfingar-
innar og einingar hennar."]
Jalta, ágúst 1964.
Boðsbréf Kominúnistafiokks Sovétríkjanna um undirbúningsfund
að alþjóðaráðstefnu barst til Rómar nokkrum dögum áður en ég
fór þaðan. Okkur gafst þess vegna ekki færi á að fjalla um það
saman á stjórnarfundi, einnig vegna þess að margir félagar voru
fjarverandi. Við nokkrir félagar í framkvæmdastjórn flokksins gát-
um aðeins rætt það stuttlega. Bréfið verður lagt fyrir miðstjórn