Réttur - 01.11.1964, Qupperneq 56
VÍÐSJÁ
Goldwater — Hitlcr Bandarikjanna?
Goldwater var í sumar kosinn forsetaefni Republikanafiokksins.
Harðvítugasti auðvaldsflokkur Bandaríkjanna hefur samþykkt
slefnuskrá, sem þýðir stríð út á við, harðstjórn inn á við. Goldwater
sjálfur er raunverulega fasisti í hugsun, eins og afstaða hans, Gyð-
ingsins, gegn jafnrétti negranna sýnir.
Það eru að gerast örlagaríkustu atburðir heimssögunnar nú í
Bandaríkjunum og nú reynir á hvort þjóðir heims hafa eitthvað lært
af tilkomu nazismans í Þýzkalandi fyrir 30 árum og heimsstríði því,
er hann olli. En munurinn er bara sá að sá Ilitler-Goldwater, sem
hið nýríka auðvald Bandaríkjanna nú einbeitir sér að því að fá
sem forseta, hefur vetnissprengjur að vopni, nægar lil útrýmingar
öllu mannkyni.
Utnefning Goldwaters er afleiðing þess andkommúnisma og yfir-
drottnunarstefnu, sem drottnað hefur í Bandaríkjunum. Bandaríska
auðvaldið hefur notað „lýðræðið“ til þess að breiða yfir kúgun
sína: undirokun og réttleysi verkalýðs og sérslaklega negranna
heima fyrir og nýlendukúgunina erlendis: Kongo, Suður-Vietnam,
Suður-Ameríku o. s. frv. Þegar það óttast að lýðræðishjúpurinn
dugi því ekki lengur til að viðhalda yfirdrottnun og vægðarlausu
arðráni, varpar það honum brott og tekur upp opinbera barðstjórn:
Það gerði það í Suður-Vietnam, í Kongo, í einræðisbyltingum
Suður-Ameríku, — og það hótar nú samsvarandi hernaðaraðgerð-
um á heimsmælikvarða: heimsstríði, — fái það ekki sitt fram, —
og það býr sig undir að gera morðin í Mississippi að heildarpólitík
amerískrar ríkisstjórnar. — Að ætla að loka augunum fyrir þessum
staðreyndum er glæpsamlegt. l'ilvera mannkynsins er í veði, ef
menn sjá ekki nú. Það þýðir ekki að trúa á nein örlög: „Talið ekki
við mig um örlög. Stjórnmálin eru örlögin,“ sagði Napoleon. Og
það er rétt. Sá, sem ekki tekur af fullri festu rétta afstöðu í stjórn-
málum nú, vinnur að því að stofna lífinu á jörðinni í hættu.
Hættumerkin eru mörg og táknræn.