Réttur - 01.01.1965, Síða 16
16
R E T T U lí
daga“* ** geti aftur tekið upp opinber störf og verði sýndur verð-
ugur heiður.
Lokið er ægilegu borgarastríði, tröllauknu á víðfeðmu sjónar-
sviði, — sem virðist þó varla hafa staðið nema í níutíu daga ef
það er borið saman við styrjaldir gamla heimsins, hundrað ára
sfríðið, þrjátíu ára stríðið og tuttugu og þr.iggja ára stríðið.*,! Og
nú er yður, herra, það hlutverk á hendur falið að u]>præta með lög-
gjöf það, sem fellt var með sverði, og leiða erfitt og vandasamt
verk stjórnarfarslegrar upphyggingar og endurfæðingar þjóðfé-
lagsins. Þér verðið að varðveita meðvitundina um mikla köllun
yðar fyrir sérhverri tilslökun frá ströngum skyldum. Þér munið
aldrei gleyma því, að í upphafi liins nýja tímabils frelsunar vinn-
unnar, var af amerísku þjóðinni hin ábyrga forusta falin tveim
mönnum, er unnu með hörðum höndum, — annar var Abraham
Lincoln, hinn Andrew Johnson.
Undirritað í London 13. maí 1865 í nafni Alþjóðasambands
verkalýðsins af miðráðinu:
(38 nöfn).
* Eftir að Suðurríkin liöfðu hafið hernaðaraðgerðir, bauð Lincoln, 15.
apríl 1861 út 75000 sjálfboðaliðum til herþjónustu. Þá var talið að uppreisn-
in yrði bæld niður innan þriggja mánaða, en borgarastríðið stóð til 1865.
** Tuttugu og þriggja ára stríSiS — stríð samsteypu Evrópuríkja gegn
franska lýðveldinu og Frakklandi Napóleons, 1792—1815.