Réttur


Réttur - 01.01.1965, Page 45

Réttur - 01.01.1965, Page 45
RETTUR 45 sköpun almennings allt að því einokuð af auðmannastéttinni og á- brifatækjum hennar: blöðum, útvarpi og sjónvarpi. Frentfrelsið hafa peningarnir raunverulega, ekki mennirnir. Auglýsingar auðfélaga eru þýðingarmeiri til prentfrelsis en mannréttindagrein stjórnar- skárinnar. Það er staðreynd, að á Norðurlöndum og Bretlandi hef- ur voldug verkalýðshreyfing, sem helmingur þjóðarinnar fylgir, ekki aðstöðu til að gefa út fjöllesnustu dagblöð þjóðanna, -—■ getur jafnvel engin dagblöð gefið út nema fá verkalýðsfélögin til að greiða stórfé með þeim, — en nokkrir auðhringar gefa úl mann- skemmandi og menningarspillandi dagblöð, sem eru stórgróðafyr- irtæki um leið og þau véla almenning til pólitísks fylgis við úrell auðhringavald. — Eða hugsum okkur eitt augnablik að það væri Kommúnistaflokkur Bandaríkjanna, sem æLti „New York Times“, Monthly Review gæfi út ,,Life“ og „Look“ og verkalýðssamtök sósíalistisk og önnur, ættu hin stórhlöðin, en þeir Morgan, Rocke- feller, Du Pont og Mellon gæfu út lítt útbreitt v.ikublað í New York til að boða kapitalismann, -— og sjónvarp og útvarp allt væri í höndum sósíalistiskrar verkalýðshreyfingar, — og skólar allir kenndu sósíalisma í stað þess að innræta borgaralegan hugsunar- hátt, sem nú, — hvernig halda menn að Bandaríkjamenn myndu þá kjósa?!! Auðvald og lýðræði eru andstæður. Og auðvaldið þolir þróun lýðræðis .innan vébanda skipulags síns aðeins að ákveðnu marki: Þegar að því marki er komið að lýðræðisöflin, — þ. e. verkalýðs- hreyfingin og bandamenn hennar, — hafa brotið einokun auðvalds- ms til skoðanamyndunar í svo ríkum mæli á bak aftur, að þau séu að því komin að ná meirihluta, — þá gerist eitt af tvennu: auðmannastéttin „slær taflið um koll,“ afnemur borgaralega lýð- ræðið og kemur á fasisma (sbr. Ítalíu 1924, Þýzkaland 1933, Spán 1936 o. s. frv.), — eða lýðræðisöflin afnema auðvaldsskijiu- lagið með því að koma á efnahagslegu lýðræði, þ. e. að fólkið eigi sjálft fyrirtækin og reki þau í sjálfs síns þágu með samvinnu eða sameign, ef um nýtízku iðnaðarþjóðfélag er að ræða, — með öðrum orðum sósíalisma, — og einstaklingsrekslur kemur þar auðvitað líka til greina þar sem ekkert arðrán fylgir honum, m. ö. o.: ef einstaklingur, sem á framleiðslutækið, vinnur með því sjálfur. Það er tími til kominn að verjendum dauðadæmdrar auðvalds- húgunar haldist ekki lengur uppi að verja hana með því að bregða lýðræðinu yfir illa ásjónu liennar sem grímu.

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.