Réttur - 01.01.1965, Síða 53
Víðsjá
Leslie Morris látinn.
Leslie Morris, aðalritari Kommúnislaílokks Kanada, andaðist
13. nóv. 1964. Með honum er fallinn í valinn einn af foryslumönn-
um kommúnistisku hreyfingarinnar í heiminum.
Leslie Morris var fæddur 10. okt. 1904 í Somerset í Englandi.
Foreldrar lians voru velskir, faðir hans verkamaður. 12 ára gam-
all fór hann að vinna. 15 ára gamall tók hann þátt í fyrsta verk-
falli sínu, járnbrautarverkfallinu 1919. AriS 1920 fór hann ásamt
fjölskyldunni til Kanada og gerðist strax virkur í verkalýðshreyf-
ingunni. VarS hann brátt einn af leiðlogum Verkalýðsæskunnar
(Young Workers League). 1921 gekk liann í Kommúnistaflokk
Kanada. 1962 varð liann aðalr.itari Konnnúnistaflokksins.
Starf lians í Kommúnistaflokk Kanada var mikið og farsæll.
Hann var lengi aðalritstjóri aðalmálgagns flokksins. Hann var einn
helzti leiðtogi flokksins þau ár, sem hann var bannaður, 1931—36
og 1940—43. Hann sætti bæði fangelsisvist og ofsóknum, en ekk-
ert megnaði að brjóta hann á bak aftur. Hann einbeindi baráttu
sinni að yfirdroltnun Bandaríkjaauðvaldsins í Kanada, að ein-
ingu verkalýðsins og lýðræðisaflanna og að sjálfstæðisréttindum
frönsku Kanadamannanna.
Leslie Morris var ágætur blaðamaður og rithöfundur. Eftir liann
liggur fjöldi greina og bæklinga og framlag hans til marxistiskra
vísinda er gott. Hann var formaður nefndar þeirrar, er samdi stefnu-
skrá flokksins: „Leið Kanada til sósíalismans.“
Grein eftir Leslie Morris birtist í Rétti 1962, 5.-6. hefti og hét
hún: „Alþýðuhreyfing Kanada og verkefni hennar.“ Var þar minnst
40 ára afmælis Kommúnistaflokks Kanada og rædd mörg af höf-
uðverkefnum flokksins.
Milli sósialistiskrar verkalýðshreyfingar Kanada, ckki sízt í