Réttur - 01.01.1965, Qupperneq 61
liETTUR
61
Þá er minningargrein um Leslie
Morris, aðalritara Kommúnistaflokks
Kanada.
Þá koma að vanda ýmsar greinar
nm starfsemi hinna ýmsu Kommún-
istaflokka: Stefnu Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna, reynslu Verkamanna-
flokks Guatemala á ýmsum sviðum,
um kosningasigur Kommúnistaflokks
SvíþjóSar, um æskuna í hinu sósíal-
ístiska Þýzkalandi, um starf komm-
unistadeilda í samvinnuhreyfingunni
i Mongólíu.
Þá er sett fram mat á ýmsum sam-
tímaatburðum: ósigri Goldwaters í
Bandaríkjunum, endalokum hernaS-
areinræðis í Súdan.
Ritstjórn tímaritsins gengsl fyrir
umræSufiindum um ýms mál. „Fjár-
málaauSvaldið í dag“ hefur verið
eitl efnið og eru lokagreinar þeirra
umræðna hirtar í þessu hefti.
Kenningin um kapitalisma nútím-
ans var og rædd á svipuðum fundi og
er sagt frá ræSum þar í þessu hefti.
J. li. Tavares de Sa ritar um endur-
skipulagningu lýðræðisaflanna í Bras-
ilíu.
I kaflanum um ofsóknir gegn lýð-
ræðissinnum er m. a. sagl frá ógn-
arstjórninni á Filippseyjum og skír-
skotað til almenningsálitsins í heim-
tnum um að stöðva framferði hennar,
— ennfremur er varað við ráðstöfun-
um afturlialdsins f Grikklandi og sagt
fi'á ofsóknum í Kolombía og víðar í
rómönsku Ameríku.
I kaflanum um bækur og tímarit
segir m. a. frá bók einni nýútkominni
lijá vísindaútgáfunni (Science Pub-
lishers) í Moskvu, er heitir „Líf helg-
iið haráttunni" (Lives dedicaled to
f'1i'uggle). Þar er sögð saga margra
kommúnista, er fórnuðu ævinni og
margir hverjir lífinu fyrir málstað-
inn. Meðal þeirra, er þar segir frá,
eru: Ernst Thalmann, hinn
heimsfrægi foringi þýzka Kommún-
istaflokksins, er Hitler lét myrða
1944, — Laida Lamrani, kommúnisti
í Aigier, er féll í frelsisstríðinu við
Frakka, — Galo G. Uias, aðalritari
Kommúnistaflokks Chile, en heilsa
hans var eyðilögð með langri dý-
flyssudvöl, — Manovar Musso, stofn-
andi Kommúnistaflokks Indónesíu,
sem fórnaði lífinu fyrir frelsi lands
síns, — Vilfrido Alvarez Jara, foringi
kommúnista í Paraguay, er drepinn
var af lögreglu harðstjórans. Þá er
sagt frá K. Tokuda, aðalritara jap-
anska Kommúnistaflokksins, — Rub-
en Jaramillo, bændaforingja í Mex-
iko, — Guiseppi di Vittorio, ítalska
verkalýðsforingjanum, — írönsku
kommúnistunum Siamek og Rousbek,
er stjórnuðu leynibaráttu flokksins.
Er bók þessi öll hin merkilegasta og
ævisögurnar eiga erindi til allra sósí-
alista.
*
World Marxist Review. 1.
liefti 1965. -— Prag.
1 þessu 1. hefti árgangsins 1965
af World Marxist Review, tímariti
kommúnistaflokkanna og annarra
verkalýðsflokka, eru m. a. þessar
greinar:
John Gollan, aðalritari hrezka
Kommúnistaflokksins, ritar um Bret-
land eftir þingkosningarnar. Er grein-
in mjög alvarleg viðvörun til hrezka
Verkamannaflukksins og ríkisstjórn-
ar hans, að lenda ekki í klóm alþjóð-