Réttur - 01.01.1965, Side 64
64
RETTUR
The Afriean Communist. —
Gefið út af South African
Communist Party. London.
„The African Communist“ er tíma-
rit, sem út kemur ársfjórðungslega á
ensku. Það er gefið út af liinum
liannaða Konnnúnistaflokki Suður-
Afríku. Umboðsmaður Jiess í Lund-
únum er Ellis /loivles, 52 Palmerstone
Road, London S. W. 14. — Hvert
hefti er 70—80 síður og kostar ár-
gangurinn 6 shillinga eða f dollar.
Þetta límarit flytur fjölda greina
um frelsisharáttu Afríkuþjóðanna. I
fjórum heftum síðasta árs hafa verið
ágætar greinar, t. d. um Ghana, um
Nigeriu og Marxismann, um lýðræði
og Afríku, um Sósíalistaflokkinn í
Nigeriu, um uppbygginguna í Algier
eftir hinn fræga franska rithöfund
llenri Alleg, um verkalýðsfélögin í
Tanganyika, o. fl. o. fl., auk fjölda-
margra ágæta greina um fasismann
i Suður-Afríku og liina hetjulegu bar-
áttu kommúnista og annarra frelsis-
vina gegn honum.
í októher-desember-hefti 1964 var
grein um píslarvottana þrjá: Mini,
Khayinga og Mkaba, sem teknir voru
af lífi 6. nóvember 1964 af fasista-
stjórn Verwoerds. Þar er og grein
um Zambiu, yngsta lýðveldi Afríku,
sem Jiá var. Þar bætast alltaf ný við.
I fyrsta hefti þessa árs er m. a.
grein um baráttuna í Kongó, um
kosningarnar í brezku Guayana (hún
heitir „Cheated not defeated," —
„blekktir en ekki sigraðir.“). — Enn-
frenmr fjölmargar greinar um frels-
isharáttuna í Suður-Afríku.
Þetta tímarit ættu sem flestir að
kaupa og lesa. Það er í senn nauð-
synlegt fyrir alla frelsisunnandi ís-
lendinga að fylgjast vel með þvi sem
er að gerast í Afríku, — frelsisbar-
átta aljiýðunnar er nú hörðust og
hetjulegust Jiar. Og það er einnig
óbeinn stuðningur við hina lmgrökku
frelsisvini að kaupa og lesa tímarit
þeirra. E. O.
*
Monthly Review. An Inde-
pentent Socialist Magazine.
16. árg. 1964. — 333 Sixth
Avenue. New York 14. —
New York.
Um þetta bandaríska tímarit hef-
ur áður verið ritað í Rétt. í því koma
hvað eftir annað hinar merkustu
greinar og stundum eru heil hefti
ein lítil bók. Þannig var t. d. í síðasta
árgangi 6. heftis bókin „Inside the
Cuban Revolution" eftir Adolfo Gilly
og 3.-4. heftið „The Ordeal of British
Guyana“ (Eldraun hrezku Guyana)
eftir Philip Reno. Eftirtektarverð
grein er í janúarheftinu 1965 eftir
Joan Robinson, hina frægu brezku
vísindakonu í Iiagfræði (samverka-
kona Keynes), er hún nefnir „Kore-
an miracle“ (Kraftaverkið í Koreu),
tim liina stórfenglegu uppbyggingu
þar í landi eftir hörmungar styrjald-
arinnar. I ritstjórnargrein er ágæt
skilgreining á erlendri fjárfestingu
og tekið sem dæmi fjárfesting banda-
rískra auðmanna í Kýprus með fé-
laginu Cyprus Mining Corporation.
Er þar rakin bitur reynsla, sem Is-
lendingum væri liollt að kynna sér.
*