Réttur - 01.10.1930, Síða 14
STRAUMHVÖRF
[Rjettur
326
unum og tilraunin mistókst. Yfirgnæfandi meirihluti
Sambands ungra jafnaðarmanna stóð með kommúnist-
unum, þegar á reyndi.
En með þessari klofningu er hin vægðarlausa bar-
átta milli sosialdemoki-ata og kommúnista í íslenskri
verklýðshreyfingu hafin.
Nauðsyn kommúnistaflokks.
Sorgarleikurinn, sem sífelt hefur verið að gerast í
verklýðshreyfingunni síðan 1914, spilling sosialdemo-
krataflokkanna og klofning verklýðshreyfingarinnar
af þeirra völdum, er nú að hefjast hjer.
Það er ekki í fyrsta sinn í sögunni, sem yfirstjettin
grípur til þess ráðs að tengja íorustulið undirstjett-
anna við ríkisvaldið, og spilla hreyfingu þeirra og
rugla hugsjónum þeirra á þennan hátt. Fyrirmyndin
að þessu verki, hið sígilda, sögulega dæmi, er spilling
kristninnar, þessarar voldugú hreyfingar fátækrar al-
þýðu í fornöld, með því að tengja hana ríkisvaldinu,
gera forustulið hennar, biskupa og presta, að launuðum
embættismönnum ríkisins. Með því tiltæki Konstantins
keisara var broddurinn brotinn af þessu volduga upp-
reisnarafli, sem engin ofsókn hafði megnað að bæla
niður. En væru einhverjir sannkristnir, sem hjeldu á-
fram hinum gamla uppreisnaranda stefnunnar, þá
voru þeir ofsóttir og teknir af lífi. Og þegar fram i
sótti, stóð hin kristna kirkja sjálf fyrir þessum ofsókn-
um. Ríkisvaldinu hafði því hepnast herbragð sitt fork-
unnarvel. Annar hluti þessarar hættulegu hreyfingar
var keyptur í lið með ríkisvaldinu á slunginn hátt, hinn
var barinn niður með valdi, ef hann hjelt áfram bar-
áttunni fyrir hugsjónum brautryðjenda kristninnar.
Afleiðingin var að einhver voldugasta uppreisnarhreyf-
ing undirstjettanna, kristnin, var gerð að verkfæri rík-
isvaldsins til að kúga lýðinn og hefur verið svo síðan,