Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 30
342 SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS [Rjettui
halds, án forustu í stjettabaráttunni, hlýtur að leiða til
misnotkunar á samtökum verkalýðsins af hálfu póli-
tískra braskara og erindreka auðvaldsins. Slíka
»sameiningu« hefir katólska kirkjan, versti óvinur
verkalýðsins og allra undirokaðra, einnig á stefnuskrá
sinni. Slík »sameining« miðar að því að spenna verka-
lýðinn fastan fyrir vagn auðvaldsins. Og takist að
rugla svo nokkurn hluta alþýðunnar, að hún fylgi er-
indrekum borgaranna, þá tekst og að kljúfa óþroskað-
asta hluta verkalýðsins frá stjettvísasta hlutanum. Slík
»sameining« hlýtur að leiða til klofnings.
Því er haldið fram, af andstæðingum vorum, að
stofnun kommúnistaflokks merki skipulagsbundna
klofningu alþýðusamtakanna. Hvað merkir stofnun
kommúnistaflokks? Hún er í því fólgin að stjettvísasti
hluti verkalýðsins tekur höndum saman, í bjargföstum
samtökum, til að sameina alla alþýðu í stjettabarátt-
unni. Hún er fólgin í sköpun forustuliðs, sem gengur
taktfast á undan hina rjettu leið, þar til fullur sigur er
unninn. Hún merkir enga klofningu, heldur meiri sam-
tök og traustari samtök. — Hin pólitíska klofning er
þegar orðin staðreynd og húri er í því fólgin, að for-
ingjar Alþýðuflokksins hafa gengið borgurunum á
hönd og tekist að rugla svo nokkurn hluta verkalýðsins
að hann fylgir þeim. Hlutverk kommúnistaflokks er
látlaust og öflugt starf alla daga að sameiningu verka-
lýðsins og alls hins vinnandi fjölda til sjávar og sveita,
á grundvelli stjettabaráttunnar.
Ein þeirra röksemda, sem mjög er notuð af þeim,
»sem tvíráðir standa«, hljóðar þannig: Kommúnism-
inn er að vísu góður og þjer bendið á rjettar leiðir. En
fólkið vill ekki fylgja ykkur. Það þýðir ekkert að fara
á undan fjöldanum.
Ef engin gengur á undan, stendur sveitin í stað.
Kommúnistaflokkurinn er forvörður stjettahagsmuna
verkalýðsins, þessvegna hlýtur fjöldinn að fylgja hon-