Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 66
878 FRA ÍSL. VFRKI.ÝÐSHRFTYFÍNGU [Rjettuf
löggjöf og atvinnuleysistryggingum, en aðalstarf þess
er þó uppeldisstarfið, — það að skipuleggja starfsemi
hins róttæka verkalýðs í hreyfingunni, sameina úrvala-
lið hans og búa það undir hlutverk sitt, forustuna í
stjettabaráttu verkalýðsins.
Þó hefur það hamlað starfsemi »Spörtu« mjög að
ekkert kommúnistablað hefur verið til í Reykjavík.
Með miklum erfiðismunum og fórníysi kommúnistanna
reykvísku, tókst þeim þó að lokum að koma upp blaðl,
er hóf göngu sína í sumar, og heitir »Verklýðsblaðið«.
Er það vikublað á stærð við »Lögrjettu«.
Blað þetta hefur nú þegar sannað hve miklir og
snjallir þeir kraftar eru, sem virðast liggja í dvala hjá
verkalýðnum og haldið er niðri af afturhaldssömum
foringjum hans. Hefur það nú sýnt sig þessa þrjá mán-
uði, sem »Verklýðsblaðið« hefur komið út, að því er
betur stjórnað hvað allan frágang og blaðamensku
snertir en nokkurt annað blað á íslandi. Jafnframt
sýnir það sig sem hreint verklýðsblað, er flytur ein-
göngu greinar, er varða verkalýðinn, hreyfingu hans,
hagsmunabaráttu og hugsjónir, og er auk þess að miklu
leyti ritað af verkalýðnum sjálfum með þeim verka-
mannabrjefum, sem verkamenn og verkakonur út um
land senda blaðinu. Er það algerlega nýstárlegt í ís-
lenskri blaðamensku, og sýnir vel hve nánu sambandi
blaðið nú strax hefur náð við lesendur úr verklýðs-
stjett.
Með »Verklýðsblaðinu« er skapað ágætt málgagn
fyrir kommúnista, og það einmitt á hentugasta tíma,
þegar árásir atvinnurekendanna dynja yfir og nauð-
synlegt er að verkalýðurinn eigi ötulan málsvara, ger-
sámlega óháðan ríkis- eða banka-valdi íslenska auð-
valdsskipulagsins.
Öllum þeim, sem fylgjast vilja með í málum verka-
lýðs og fátækra bænda á íslandi, er nauðsynlegt að
kynna sjer »Verklýðsblaðið«. Þeir munu vart finna ó-