Réttur - 01.10.1930, Blaðsíða 29
Ujettur] SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS §41
anna, hefði verkalýðsbyltingin ekki gengið með sigur
af hólmi. Og þó var bolsévikkaflokkurinn tiltölulega
lítill alt fram að byltingunni. Hefði í Rússlandi verið
stór »alþýðuflokkur« með svipaðri stefnuskrá og skipu-
lagi og íslenski flokkurinn, en enginn lítill bolsévíka-
flokkur, myndi auðvaldið drottna yfir öllum ráðstjórn-
arlöndunum enn í dag.
Syndikalistar, ýmsar tegundir enskra sósíaldemó-
krata (Trade-Unionistar og Labouristar) og síðast en
ekki síst íslenskir sósíaldemókratar og bræðingsmenn
(centristar), tala stöðugt um sameining allrar alþýðu
í einn pólitískan flokk, gætandi þess ekki, eða öllu held-
ur lokandi augunum fyrir því, að meðan auðvaldið
drottnar, hlýtur það aðeins að vera nokkur hluti verka-
lýðsins, sem er fær til forustu. Þeir vilja koma auð-
valdinu á knje, án þess að vita hvernig á að fara að
því. Þeir vilja koma jafnaðarstefnunni í framkvæmd
án þess að vita hvernig á að fara að því. »Þeir ætla
sjer að eignast skip, þótt enginn kunni að sigla«. Þeir
þykjast tala máli allrar alþýðu, með því að prjedika
sameiningu hennar á þeim grundvelli, sem ómögulegt
er að sameina alla stjettina á. Jafnframt berjast þeir á
móti sameiningu hennar um þær kröfur, sem allur
verkalýður hlýtur að standa sameinaður um, á öllum
stigum stjettabaráttunnar. Og árangurinn verður sá,
að forustan kemst í hendur manna, sem raunverulega
reka erindi stjettarandstæðingsins.
i Bretlandi er forustan komin í hendur Mac-Donald
og Co. sem reynst hafa hæfari útverðir bresku stór-
veldastefnunnar en íhaldsflokkurinn, sem áður hafði
það vandaverk með höndum. Á íslandi er forustan
komin í hendur sósialdemóki’ata, sem styðja auðvalds-
flokk þann, sem nú er við völd og gengur í broddi fylk-
ingar í framrás fjármálaauðvaldsins í landinu.
Þessi alranga skoðun um sameiningu verkalýðsins,
án raunverulegrar stefnuskrár, án raunverulegs inni-