Réttur - 01.10.1930, Side 34
346 SKIPULAGSMÁL VERKALÝÐSINS [Ujettur
liður flokkanna við hinn vinnandi fjölda. Hjer á landi
þarf kommúnistaflokkurinn að skapa sjer sellur í öll-
um verksmiðjum og verkstæðum, á hverju skipi og yf-
irleitt alstaðar, þar sem menn eru komnir saman að
vinnu á hverskonar vinnustöðvum á sjó og landi. Enn-
fremur í hverju kauptúni á hverju stórbýli og eftir
því sem vjer náum fótfestu meðal smábændanna í
hverri sveit. Og þegar flokkurinn hefir skapað sjer
slík vígi, á hann sigurinn vísan.
Hvar sem þrír eða íleiri kommúnistar vinna saman
á vinnustað, mynda þeir með sjer sellu eða starfshóp.
Sellunni tilheyra ennfremur atvinnulausir fjelagar, sem
áður hafa unnið á vinnustaðnum, þar til þeir hafa
fengið atvinnu annarstaðar og tengst annari sellu.
Flokksfjelagar, sem ekki vinna á neinum vinnustað,
eða á vinnustöðvum þar sem ekki eru nægilega margir
fjelagar til að mynda sellu, gerast venjulega fjelagar í
sellunni á þeim vinnustað, sem er næst vinnustað
þeirra eða heimili. Sje margt fjelaga, sem hvergi vinn-
ur á vinnustöðvum, getur komið til mála að stofna sell-
ur í bæjarhverfum (götusellur í stórborgunum).
Sellurnar kjósa sjer stjórn, t. d. á þriggja mánaða
fresti. Sje sellan mjög fámenn, nægir að velja einn
mann til að annast stjórnarstörfin. Sjeu minnsta kosti
7—10 manns i sellu, er sjálfsagt að velja þriggja
manna stjórn, er skifti sjálf með sjer verkum, t. d.
þannig að einn er formaður, annar ritari og þriðji
gjaldkeri. Formaðurinn boðar fundi, hefir yfirumsjón
með skipulagningu starfsins og er persónulega ábyrg-
ur gagnvart flokksstjórninni. Ritarinn heldur gjörða-
bók sellunnar og hjálpar formanninum að skipuleggja
starfið. Gjaldkerinn annast innheimtu flokksgjalda,
og hefir umsjón með öllum fjármálum sellunnar. Sje
sellan sæmilega stórt fjelag, er nauðsynlegt að stjórn-
in sje fjölmennari.
Sellurnar halda fundi t. d. vikulega og er þá heppi-
i