Réttur - 01.10.1930, Page 45
íljettur] HREYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU 357
er um frönsku bylting'una, ógnarveldið. »Frönsku þ.jóð •
inni hafði verið lofað allskonar frelsi, en í stað þess
kom nú versta harðstjórn. Svo fór í hönd ógnartíminn,
sem er ataður slíkum illmennsku- og ódáðaverkum, að
menn hryllir við«.* Hann heyrði líka ýmislegt um rúss-
nesku bolsana«. **«Kommúnistiskur stjórnleysis- og
öfgaflokkur steypti stjórninni frá völdum (nóv. 1917)
undir forustu Lenins og Trotski. Þeir komu á ógnar-
veldi, sem tqk frönsku byltingunni langt fram að
grimmd, og vegna hinna skemmandi áhrifa bolsevism-
ans á allt atvinnulíf, jókst neyðin enn meir, með skorti
og huhgursneyð«. Hann veit og skilur, að bylting er
óheilbrigð og móti guðs vilja. Breytingar mega að vísu
verða, en aðeins seigt og fast, hægt og hægt. Náttúran
gerir engin stökk, sagði hinn náttúrufróði Rómverji.
Hann lærir náttúrufræði og eðlisfræði, en aðeins lítið
í hverju, einkanlega í þróunarkenningunni, sem gæti
ruglað hann í sannleika biblíunnar. Annars er nauð-
synlegt fyrir hann að læra þetta, til þess að verða fær-
ari við framleiðslu auðvaldsins, því að það merkilega
er, að hin goðborna yfirstétt sá eigi, að verkamennirn-
ir þurftu allrar þessarar mentunar, fyr en seint á öld-
um, er þeir þurftu á henni að halda við framleiðsluna.
Áður var blessað kverið og presturinn látin nægja.
Auk þessara skóla eru líka aðrir enn æðri, sem eru
aðallega fyrir yfirstéttabörnin, þó komast þangað oft
skynsamir öreigaunglingar, sem venjulega dragast frá
stétt sinni og sjá sér færi til valda og metorða. Þessir
fornu öreigar verða svo stéttarbræðrunum tákn hins
duglega og atorkusama, er vinnur sig upp.
Enn hefir þjóðfélagið öreiganum margt að bjóða.
Það hefir alls kyns klúbba og skemmtifélög, eins og t.
d. skátafélög, íþróttafélög, söngfélög o. s. frv. í öll
* og **Pallin Boetius: Lárobok i almán historia for realskolan
4. uppl. 1919.