Réttur - 01.10.1930, Page 52
364
HREYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU
[Rjettur
öreigarnir eru fræddir um hina þróunarlegu sögu-
skoðun. Þeim skilzt, að rétt og rangt eru aðeins hags-
munahugtök, og í stéttskiftu þjóðfélagi eru þau sköp-
uð í anda yfirstéttarinnar. Þeir vita að sagan er saga
stéttabaráttu, sem sprottin er af atvinnuháttunum og
ólíkum hagsmunum. öreiginn skilur líka, að hið borg-
aralega þjóðfélag er hvorki heilagt né eilíft, heldur ber
dauðan í brjóstinu, eins og öll önnum stéttskift þjóð-
félög. — Hann veit og sér að mótsetningarnar skerp-
ast með hverjum degi, byltingin nálgast. öreigunum
skal kennt að beita þróunarspeki Marx á rás viðburð-
anna, bæði tilaðskiljahanaogbreyta henni. öreigunum
er kennd náttúrufræði og þróunarsaga jarðlífsins, sem
í raun og veru er »marxistisk« í eðli sínu, og miðar að
því að gefa þeim samkvæmari skilning á náttúrunni og
mannlegu lífi, gerir þá öruggari í stéttarbarátt-
unni. — Innan F. U. J. þarf einnig að skipuleggja
fræðslustarfsemi. F. U. J. verða að halda uppi
kommúnistiskum kvöldskólum og lesstofum, þar sem
unglingunum er kenndur marxisminn og viðhorf hans.
En alla þessa fræðslu verður að miða við hagsmuni
stéttabaráttunnar. — Fræðsluna og baráttuna verðui-
að tengja í íifandi samband, sem birtist í byltingar-
kenndum athöfnum í anda kommúnismans. Högun
hinna sosiahstisku skóla skal einnig sniðin í þeim anda.
Myndugleiki kennarans yfir nemendum verður að
hverfa, hin stirðnaða miðalda-»typa« verður að falla
úr sögunni. Kennarinn verður að vera nemendunum,
sem reyndari bróðir og félagi, sem leiðbeinir þeim í
leitinni. Upptuggan og yfirheyrslufarganið verður að
hverfa að mestu leyti. Námið þarf að verða meira
sjálfs-nám. Það verður að breytast þannig, að nemand-
anum verði ljúfara að leita og rannsaka. Það þarf að
vekja áhuga þeirra. Kennarinn verður að leiðbeina og
hvetja, opna augu þeirra fyrir fegurðinni, eigi hinni
vímukenndu, svæfandi fegurð, heldur fegurð, sem vek-