Réttur - 01.10.1930, Síða 56
308
HREYFING ÍSL. ÖREIGAÆSKU
[Rjettur
eru jafnvel skammaðir fyrir klaufsku af »stóra pabba«,
er heim kemur. Og í öði*u lagi, er þar lagður traustur
grundvöllur að róttæku starfi, um tveggja ára bil.
Er þingið var hafið, og er »krátarnir« sáu, að þeir
myndu verða í minnihluta, tóku þeir að fremja alls
konar lögleysur. Tók forseti sér algert einræði og úr-
skurðarvald. Skipaði hann kjörbréfanefnd af eigin geð-
þótta og hirti ekkert um, þó að félagarnir færu fram
á, að hún væri kosin. Er þessi ólöglega nefnd hafði
lokið starfa sínum og lýst því yfir, að aðeins gömlu fé-
lögin hefðu réttindi á þinginu og neitað að rannsaka
kjörbréf hinna, sleit forseti fundi og ákvað klukku-
stundar hlé.
Að því loknu söfnuðust menn aftur saman, og til-
kynnti þá forseti, að þinginu væri slitið. Menn vorir
mótmæltu harðlega þessari lögleysu og skoruðu á fé-
lagana að sitja kyrra. 12 fóru en 30 sátu eftir. Salurinn
tók undir af hrópunum »niður með svikaraná«. Hinir
12 falspostular flýðu af þinginu.
Aldrei hafa sosialdemokratar afhjúpað sig svo ber-
lega, aldrei snúizt svo svívirðilega í hring. í upphafi
þingsetningarræðu sinnar ræddi fyrv. forseti af hrifni
og mælsku um samúð og samvinnu milli sosialdemo-
krata og kommúnista og* nauðsyn á F. U. J. í hverju
kauptúni landsins. »Kyndill« hafði heilsað hinum ný-
stofnuðu félögum og boðið þau velkomin inn í samtök-
in með íburðarmiklu gaspri. Þau voru hvött til að
senda íulltrúa á þingið.
En hvað verður er þangað kemur. Þegar hinir
grunnfærnu, heimanglöðu demókratar uppgötva, að
þeir muni verða í minnihluta og* nýju félögin snúast að
kommúnistum, þá er blaðinu snúið við. Forseti heldui*
langar ræður um feyjubletti í samtökunum, um skyndi-
bólur, sem aðeins séu notaðar til að koma að fulltrú-
um og loks um félög, er eigi séu til. Þannig tekur hann
vexti æskulýðshreyfingarinnar. Hann kallar það feyju-