Réttur - 01.01.1970, Page 1
lettur
53.árgangur
1 9 7 0 — 1. hefti
ÓSV
,,Réttur“ byrjar nú fjórða árgang sinn í hinu nýja broti. Þökkum við öllum
stuðningsmönnum, nýjum sem gömlum, áhuga þeirra og tryggð við tímaritið,
sem gerir fært að halda því uppi — og heitum um leið á velunnara vora að
slaka ekki á með öflun nýrra áskrifenda.
Að þessu sinni einbeitir ,,Réttur“ sér að innanlandsmálum. I hönd fer harð-
vítug tvíþætt stéttabarátta: Kaupdeilur og kosningar. Það er lífsnauðsyn að
alþýðu manna skiljist að það er sama baráttan, sem háð er í báðum, krefst
einingar alþýðu í sókn og vörn. Það eru síðustu forvöð að verkalýðurinn
og verklýðssinnar stöðvi svikamyllu auðvaldsins: að svara hverri kauphækk-
un með verðbólgu og gengislækkun, ræna þannig verkamenn og launamenn
alla kaupgjaldi og eignum. Ríkisstjórn mun vafalaust sem fyrr reyna að
blekkja verkamenn með loforðum, en reynslan hefur þegar sannað að eng-
um loforðum hennar er treystandi. Það eina sem dugar, er að sýna yfirstétt-
inni, útlendri og innlendri, hvert vald býr í þeim verkalýð, sem stendur sam-
einaður í kaupdeilum og sameinaður í kosningum og er ákveðinn í að vinna
varanlegan sigur í hvortveggja.
Og varanlegur kaupgjaldssigur verður sá einn, sem fylgt er eftir með slik-
um kosningasigri að afturhaldið hafi eigi afl né þor til nýrra gengislækkana.
Þrjár greinar fjalla um þessi mál, — ýmsar hliðar. Þá er enn minnzt á aldar-
afmæli Leníns. Og skólaæskan kveður sér hér hlióðs eins og háskólaæskan
aður LANQSDÓKASAFN
300853
ÍSLANDS
1