Réttur


Réttur - 01.01.1970, Blaðsíða 24

Réttur - 01.01.1970, Blaðsíða 24
þeim flokki, er forustu hefur í stéttabaráttunni og sókninni til sósíalismans. Bréf Leníns birtist hér í íslenzkri þýðingu Franz A. Gíslasonar með örstuttum inngangi þýðanda, en bréfið birtist á næstunni ásamt fleirum í heildar- riti ásamt höfuðritinu ,,Ríki og bylting". ,,ERFÐASKRÁ“ LENINS Lenín las fyrir „Bréf til flokksþings- ins“, þekkt undir nafninu „erfðaskrá" Leníns, dagana 23. desember 1922 til 4. janúar 1923. Þetta bréf og þau sem á eftir fylgja í ritinu — „Um að veita áætl- unarnefnd rikisins löggjafarhlutverk" og „Um þjóðernavandamálið eða „auto- nomiseringuna" “ — eru í tengslum við síðustu greinar Leníns er birtast í um- ræddu riti. Ekkert þessara bréfa um innri vanda- mál flokksins var birt strax. Þau mikil- vægustu voru lesin upp fyrir flokksfélaga sem þátt tóku I umræðum um þessi mál árið 1923. Fyrst 1956 ákvað miðstjórn Kommúnistaflokks Sovétríkjanna að kynna þau fyrir fulltrúum á 20. þingi flokksins. Þau voru send flokksdeildum og birt í timaritinu „Kommúnist" og síðan gefin út sem bæklingur í stóru upplagi. BRÉF TIL FLOKKSÞINGSINS i ✓ E" mæli eindregið með því að á þessu flokksþiníu verði nokkrar breytinvar gerðar á pólitískri skipan okkar. M'g langar að kynna ykkur þær hug- mvndir sem ég tel mikilvægastar. I fyrsta latri ræð ég til að miðstjórnar- mönnum verði fjölgað upp í nokkrar tylftir eða jafnvel upp í hundrað. Mér virðist að mikil hætta steðji að miðstjórn okkar nema við gerum slíka endurbót, ef rás atburðanna verður ekki mjög hagstæð fyrir okkur (en því verðum við að gera ráð fyrir). Þvínæst langar mig að mæla með því að flokksþingið íhugi að veita samþykktum Aætlunarnefndar ríkisins lagagildi undir vissum kringumstæðum og koma þannig hvað þetta snertir að vissu leyti og við viss skilyrði til móts við félaga Trotskí. Hvað fyrra atriðið snertir, þ.e. fjölgun miðstjórnarmanna, álít ég að hún sé nauðsyn- leg bæði til að auka myndugleika miðstjórn- arinnar og til þess að vinna fyrir alvöru að því að umbæta stjórnkerfi okkar og til þess að hindra að deilur lítilla hópa innan miðstjórnarinnar geti orðið óþarflega afdrifa- ríkar fyrir flokkinn. Eg álít að flokkur okkar hafi rétt til að krefja verkalýðsstéttina um 50—100 menn í miðstjórnina og að hún geti séð af þeim án þess að ofbjóða kröftum sínum. Slík endurbót mundi efla flokk okkar verulega og auðvelda baráttu þá er hann verður að heyja umkringdur óvinaríkjum. En sú barátta gctur og hlýtur að mínu áliti að harðna mjög á næstu árum. Mér virðist að slík ráðstöfun mundi auka stórum stöðug- leika flokks okkar. 23. desember 1922. II Framhald uppskriftanna. 24. desember 1922. Með stöðugleika miðstjórnarinnar sem ég talaði um hér að framan á ég við ráðstafanir gegn klofningi að svo miklu leyti sem unnt er að gera slíkar ráðstafanir. Því að hvítliðinn (ég held að það hafi verið S. F. Oldenburg* ★ Hvítliðatímarit Petcrs Struve „Rússkaja misl“ kom út í Prag árið 1922, en stjórnmálafréttaritari þess var ekki S. F. Oldcnburg (eins og stendur í bréfinu) heldur S. S. Oldcnburg. — S. F. Oldenburg var þekkt- ur rússneskur fræðimaður og austurlandafræðingur (orientalisti) og var ritari sovézku vísindaakademíunn- ar 1922. — Úts. 24

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.