Réttur


Réttur - 01.01.1970, Page 40

Réttur - 01.01.1970, Page 40
Lenín: „Vinstri róttækni" barna sjúkdómar kommúnismans. Heimskringla 1970. Það má segja með sanni, að bókaútgáfan Heimskringla minnist hundrað ára afmælis Leníns með miklum myndarbrag. Hún gefur út þrjór bækur eftir hann i tilefni af- mælisins: „Vinstri róttækni", Hvað á að gera? og Ríki og bylting, ásamt nokkrum greinum. „Vinstri róttækni" barnasjúk- dómar kommúnismans er bók smekkiega gefin út, þýðingin lipur og vandvirknislega unnin. I fáum orðum sagt: Lenín ritaði þessa bók að fenginni reynslu i rússnesku verkalýðsbyltingunni og gerir þar grein fyrir sögulegu mik- ilvægi byltingarinnar og lærdóm- um hennar fyrir bolsévíkaflokkinn. Tilgangur hans með ritun bókar- innar var þó fyrst og fremst al- þjóðlegur. I Ijósi þessarar reynslu og athugana gagnrýnir hann henti- stefnu í alþjóðahreyfingu sósíalista og einkum margskonar „vinstri róttækni" innan verkalýðshreyfing- arinnar í Evrópu. Af þessum sök- um varð bókin nánast handbók og leiðsaga í starfsháttum og bar- áttulist kommúnista um heim allan. Hún hefur trúlega verið einna mest lesin allra rita Leníns, og enn þann dag í dag hefur hún ótrúlega mikið gildi fyrir sósialiska hreyf- ingu. Lenín samdi „Vinstri róttækni'' í apríl—maí 1920 og bókin var fullprentuð 18.—20. júlí sama ár. Nær samtímis komu þýðingar á ensku, þýzku og frönsku. Henni var dreift meðal fulltrúa á 2. þingi Alþjóðasambands kommúnista. Titill bókarinnar á íslenzku er í samræmi við útgáfur á áðurnefnd- um málum og við málvenju í Ev- rópu á þeim tíma er hún var sam- 40 in. Sjálfur notaði Lenín örsjaldan orðið „róttækni" („radikalismus"), en þeim mun oftar „vinstri" og „vinstringur",*) og á frummálinu er titillinn: „Vinstringur", barna- sjúkdómur kommúnismans. Að einum þætti er þetta rit hans i beinu framhaldi af ágrein- ingi og baráttu við „vinstri" kommúnista i Rússlandi, einkum Búkarín, Radek, Lomov, Úrítskí, Kúibíshév, Préobrashénskí o. fl. í sambandi við friðarsamningana í Brest-Litovsk. Flokksforustan var þriklofin í afstöðu til friðarskilmála Þjóðverja. Lenín vildi taka þeim og þar með vernda sigur bylting- arinnar, Trotskí kom með hið fár- ánlega vígorð „ekki frið — ekki stríð" og Búkharin og áhangendur hans boðuðu byltingarstríð. Þá skorti raunsýnt mat á stéttabarátt- unni i Evrópu og brennimerktu friðarsamninga sem svik við al- þjóðahyggju. Svo sem kunnugt er sigraði sjónarmið Leníns. I þessum deilum skrifaði Lenín margar greinar í Prövdu, þar á meðal eina 21. febrúar 1918: „Vinstri kommúnistar" og bylting- arfimbulfamb þeirra. Þar segir hann m.a.: „Við verðum að berjast gegn byltingarfimbulfambi, berjast til hins ítrasta, svo að ekki verði eftirá sagður um okkur sá bitri sannleiki: .byltingarsinnað fimbul- famb um byltingarstríð gerði útaf við byltinguna'." Það er með þetta rit Leníns eins og öll rit sem verða til í hita mikilla sögulegra átaka, að þar verður að kunna nokkur skil á um- hverfi þeirra og tildrögum, að öðr- um kosti er hætta á að þau verði misskilin og rangtúlkuð. Það hefði verið æskilegt að láta stuttan for- mála fylgja útgáfunni. Loks er rétt *) ,,Vinstringur“ no., lýsir eiginleika eða ástandi, myndað eins og t.d. rembingur. að endurtaka, að rit þetta á erindi til okkar, enda þótt hálf öld sé liðin frá samantekt þess. ERA James Klugmann: History of the Communist Party of Great Britain II. — The General Strike 1925— 26. — Lawrence and Wishart. London 1969. Annað bindi sögu brezka Komm- únistaflokksins er fyrst og fremst helgað allsherjarverkfallinu mikla 1926 og allri þeirri baráttu. Brezka auðmannastéttin bjóst til árásar á lífskjör verkalýðsins og beitti til þess ríkisvaldi sínu. í október 1925 voru 12 foringjar Kommúnistaflokksins teknir fastir og dæmdir saklausir í 6 til 12 mánaða fangelsi. Þeir höfðu viljað undirbúa viðnám verkalýðsins er til átakanna kæmi og yfirstéttin ætlaði sér að sigra. Árásin hófst á námumenn. Þeirri árás var svar- að með allsherjarverkfallinu 4.— 12. maí 1926. Kommúnistar og rót- tækir verkamenn höfðu krafizt undirbúnings þessa allsherjarverk- falls, en hin sósíaldemókratíska forysta, sem var neydd út í það sveikst um allan undirþúning og gafst síðan upp skilyrðislaust eftir 9 daga og aflýsti allsherjarverk- fallinu, er það stóð sem hæst og enskur verkalýður hafði sýnt sinn mikla mátt svo eigi varð um villst. En kolanámuverkamennirnir héldu, þrátt fyrir svikin, út í sex mánuði unz sulturinn beygði þá og konur þeirra og börn, til að sætta sig við ósigur, — lengri vinnutíma og lægri laun, — i nóvember 1926. Kommúnistaflokkurinn barðist með þeim til hins síðasta og með- limatala flokksins tvöfaldaðist. Þessi hetjusaga er vel og vand- lega skráð af James Klugmann og mikið birt af skjölum. E. O. J

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.