Réttur


Réttur - 01.01.1970, Blaðsíða 27

Réttur - 01.01.1970, Blaðsíða 27
Sinovjev Bucharin Pjatakov manna í miðstjórninni mun hjálpa verka- mönnum til að umbæta stjórnkerfi okkar sem er undir smásjánni. I raun og veru tókum við það í arf frá gamla stjórnskipulaginu því það var algerlega óhugsandi að umbreyta því á svo stuttum tíma, einkum meðan styrjöldin stóð yfir, hungursneyðin o. s. frv. Þessvegna getum við rólegir svarað þeim „gagnrýnend- um" til, sem í háði eða af illkvittni senda okkur tóninn og benda á galla í stjórnkerfi okkar, að þessir menn botna hreint ekkert í aðstæðum yfirstandandi byltingar. Það er yfirleitt óhugsandi að umbreyta stjórnkerfinu til fulls á fimm árum, sér í lagi við þær að- stæður sem ríkt hafa hjá okkur á byltingar- tímanum. Það nægir að við höfum á fimm ár- um skapað ríki af nýrri gerð þar sem verka- menn, studdir af bændum, leggja til atlögu við burgeisastéttina. Augliti til auglitis við hið óvinveitta alþjóðlega umhverfi er þetta h'ka gífurlegt afrek. En vimndin um þetta má ekki villa okkur sýn. I rauninni yfirtók- um við gamla stjórnkerfið frá zarnum og burgeisastéttinni og nú, þegar friður er kom- inn á og tryggt hefur verið það lágmark nauðsynja sem þarf til að seðja hungrið, verður allt starfið að miða að því að bæta stjórnkerfið. Ég lít þannig á málið að væru nokkrar tylftir verkamanna teknir inn í miðstjórnina væru þeir öllum öðrum færari um að leysa af hendi prófun, endurbót og nýsköpun stjórn- kerfis okkar. Það sýndi sig að verkamanna- og bændaeftirlitið sem gegndi þessu hlutverki í fyrstu reyndist því ekki vaxið og er aðeins nothæft sem „aukageta" eða undir vissum kringumstæðum sem aðstoð við þessa mið- stjórnarmenn. Þá verkamenn sem teknir verða inn í miðstjórnina á að mínu áliti síð- ur að velja úr hópi þeirra verkamanna sem lengi hafa unnið í þjónustu sovétvaldsins (í þessum hluta bréfs míns tel ég bændur alls- staðar með verkamönnum) af því að meðal l^eirra hafa þegar skapazt ákveðnar hefðir og 27

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.