Réttur - 01.01.1970, Page 14
GERRREYTING STJÓRNARSTEFN
UNNAR: LÍFSNAUÐSYN - EF MÖGU
LEIKAR ÍSLANDS EIGA AÐ HAG
NÝTAST FYRIR ALÞÝÐU
SVAVAR GESTSSON RÆÐIR VIÐ GUÐMUND
J. GUÐMUNDSSON VARAFM. DAGSBRÚNAR
Guðmundur J. Guðmundsson er flest-
um Reykvíkingum kunnugri atvinnumál-
um borgarinnar og kjörum vinnandi fólks
í Reykjavík. Þetta viðtal sem hér birtist
við Guðmund fjallar einkum um atvinnu-
mál Reykvíkinga og kjaramálin að nokkru.
Sérstaða Reykjavíkur
— Reykjavík hefur mikla sérstöðu meðal
annarra staða á lslandi og raunar meðal allra
borga í víðri veröld. Hér er um að rceða
meiri samþjöppun valdsins en víðast annars
staðar. Hér er miðstöð ríkisvaldsins, banka-
valdsins og ýmissa samtaka eins og verkalýðs-
samtakanna, Sambands ísl. samvinnufélaga
og jafnvel bændasamtakanna. Þetta hlýtur
allt að hafa veruleg áhrif á atvinnulíf í
Reykjavík, er ekki svo Guðmundur?
— Þetta hefur veruleg áhrif á atvinnulíf
í Reykjavík. Starfsgreinaskipting verður hér
allt öðru vísi en annars staðar. Hér starfa
færri við framleiðslugrundvöllinn sjálfan —
hlutfallslega — en annars staðar.
Þetta hefur ýmsar afleiðingar. Nefna má,
í fyrsta lagi að þessi samþjöppun valds og
fjármagns í borginni gefur bæjarfélaginu
mikla tekjumöguleika og atvinnuleysi ætti
ekki að vera jafnerfitt vandamál í Reykjavík
og annars staðar. En þessar valdstofnanir og
14