Réttur - 01.01.1970, Side 26
Stalin
Trotski
Kamenev
sem eflaust er gæddur mikilli viljafestu og
frábærum hæfileikum. En hann hefur alltof
sterkar tilhneigingar til stjórnunar og stjórn-
unaraðgerða til þess að hægt sé að reiða sig
á hann í alvarlegum pólitískum málum.
Auðvitað eiga þessar athugasemdir mínar
aðeins við nútíðiná og í því tilviki að hvor-
ugur þessara frammúrskarandi og dyggu
starfsmanna sæju ástæðu til að auka þekk-
ingu sína og yfirvinna takmarkanir sínar.
25. desember 1922.
Viðbót við bréfið frá 24. desember 1922.
Stalín er of grófur og þann ágalla, sem
hægt er að afbera okkar á meðal og í við-
skiptum okkar kommúnista, er ekki hægt að
/
þola af manni í aðalritarastöðu. Eg sting
þessvegna upp á því við félagana að þeir
íhugi hvernig leysa megi Stalín frá starfi og
setja einhvern annan í þessa stöðu, er aðeins
hafi einn kost er greini hann að öllu leyti frá
félaga Stalín, nefnilega að hann sé umburð-
arlyndari, dyggari, kurteisari og ekki eins
duttlungafullur gagnvart félögunum. Virzt
gæti að þetta sé áfar smávægilegt atriði. Eg
held þó, ef um er að ræða að forðast klofning
og ef litið er á afstöðu Stalíns og Trotskís
hvors til annars sem ég hef lýst hér að fram-
an, að þetta sé ekki smáatriði eða þá þess-
konar smáatriði sem öðlazt getur úrslitaþýð-
ingu.
4. janúar 1923-
III
Framhald uppskriftanna.
26. desember 1922.
Fjölgun miðstjórnarmanna upp í 50 eða
jafnvel 100 á að mínu viti að hafa tvenns-
konar eða jafnvel þrennskonar tilgang: því
fleiri sem eru í miðstjórninni þeim mun fleiri
fá skólun í starfi miðstjórnarinnar og þeim
mun minni verður hættan á klofningi vegna
einhverrar óvarkárni. Þátttaka margra verka-
26