Réttur - 01.01.1970, Síða 29
RADDIR
SKÓLAÆSKUNNAR
GESTUR
GUÐMUNDSSON :
M E NNTASKÓLI N N
í
REYKJAVÍK
Menntaskólinn í Reykjavík er safngripur.
Helzta skólahúsið er sögufrægur safngripur,
við hverja flís í veggjum þess er tengdur
sögulegur atburður, margir kennarar munu
sóma sér bezt í glerkassa á þjóðminjasafni.
betta er í sjálfu sér ósköp saklaust, en gefur
„Réttur" birti í þriðja hefti siðasta árgangs
greinar um háskólamálin. Hér á eftir fara
nú þrjár greinar ungs fólks um menntaskóla-
mál: Gestur Guðmundsson, nemandi i
Mentaskólanum gamla i Reykjavik, skrifar
um hann; Guðrún Erlendsdóttir, sem nemur
nú i fóstruskólanum ritar um kvennaskóla-
málið og Stefán Unnsteinsson, sem nú er
við nám erlendis, ritar almennar hugleiðing-
ar um þessi mál, einkum i sambandi við nýja
menntaskólafrumvarpið.
þó ofurlitla vísbendingu um það sem verra
er: sjálfir kennsluhættirnir eru sem safngrip-
ir.
Allar umræður um skólamál, a.m.k. meðal
„ríkra þjóða” eiga sitt inntak í tveim megin-
stefnum um tilgang menntunar, hvort hún
eigi að þjóna hugsmunum þjóðarheildar og
sókn til betra lífs eða forréttindastétta og
síauknu kverkataki þeirra á mannlegu lífi.
Samfara örri þróun til þjóðfélags einnar
víddar þar sem nær sérhver einstaklingur er
orðinn of ánetjaður kerfinu til að geta gert sér
grein fyrir göllum þess, eykst sífellt þörf þess,
að menntamenn tileinki sér skarpari þjóð-
félagssýn. Einnig hefur máttur menntamanna
vaxið svo hröðum skrefum, að nauðsynlegt
hlýtur að teljast að þeir reyni að gera sér
ljósa grein fyrir þjóðfélagslegu samhengi, en
lúti ekki sífellt vilja misjafnlega ráðvandra
stjórnmálamanna. Þannig stefnir allt að því
að góð menntun feli engu síður í sér félags-
lega þroskaleit en staðreyndasöfnun. Því ber
að leggja áherzlu á, að námsmaður temji sér
vísindalegar og sjálfstæðar aðferðir og mat,
geri sér grein fyrir samsetningu þjóðfélagsins
og sé gæddur sjálfstæðri hugsun, virkni í sam-
vinnu og þori að gagnrýna.
Þessi atriði miða öll að því að menntamað-
urinn sé fær um að framkvæma sjálfstætt
mat á starfi sínu og umhverfi. Um það hirða
29