Réttur - 01.01.1970, Page 34
í andófi þessu. Hópur skólafólks gerði jafn-
vel innrás í Kvennaskólann, ræddi við stúlk-
urnar og kannaði afstöðu þeirra. Kom þá í
ljós, að þær voru næstum einhuga á móti
frumvarpinu og engin hafði hug á að verða
stúdent frá skólanum þótt hann fengi þessi
réttindi.
En andbyr sem þessi heftir ekki róður þing-
manna, hafi þeir einu sinni ákveðið hvert róa
skal. Hópur kvennaskólastúlkna tók því til
bragðs að lýsa vantrausti á þingmenn á áþreif-
anlegan hátt. Þær kvöddu sér hljóðs á þing-
fundi og komu þeirri skoðun sinni á fram-
færi ásamt með rökfærslum.
Andófshreyfingin dregur sinn lærdóm af
þessu. Með alþingistökunni var stigið skref í
áttina. Þingmenn hafa gefið höggstað á sér.
Skyldi því gengið á lagið áleiðis til alvöru-
lýðræðis.
STEFÁN
UNNSTEINSSON :
SKÖLAMÁL
Það er að bera í bakkafullan lækinn að
skrifa um skólamál, so margt sem um þau
hefur verið rætt og ritað að undanförnu.
Mönnum er tekið að skiljast, að Island hef-
ur dregizt nokkra áratugi aftur úr grannþjóð-
um sínum á þessu sviði og að við svo búið má
ekki lengur standa. Hver ásakar annan, og
auðvitað hefur málið verið gert flokkspóli-
tískt — ágætt dæmi um lágkúruna í íslenzk-
um stjórnmálum. I öllum orðavaðlinum er
reyndar fátt um fína drætti, en það sem þó
hefur vakið hvað mesta athygli er frumvarp
til laga um menntaskóla, flutt á Alþingi af
menntamálaráðherra. Þetta er tímabært
frumvarp. Með því ættu íslenzkir mennta-
skólanemar í framtíðinni að búa við rúmt
húsnæði, allskyns kennslutæki, ráðgjafa í
hverju horni o. s. frv. Mikil framför. Frum-
varpið er ákaflega viðfeldið í augum þeirra,
sem þurft hafa langtímum saman að þrauka
við hið íslenzka menntaskólakerfi. En í raun-
inni hefðu þær breytingar, sem frumvarpið
felur í sér, átt að vera komnar fyrir löngu.
Það er því engin ástæða til að láta sem menn
hafi himinn höndum tekið, því að með frum-
varpinu er aðeins verið að bæta fyrir gaml-
ar syndir. Ollu nær er að rýna í það og
kanna, hvað á vantar.
Menntaskóli hins nýja frumvarps er skóli
tæknivædds nútímaþjóðfélags. Hann á að
framleiða varahluti, svo að tannhjólið geti
haldið áfram að snúast, kerfið raskist ekki. I
rauninni er hálfgerð vélalykt af honum. Það
er engu líkara en um sé að ræða dauða hluti
en ekki manneskjur. Samkvæmt frumvarpinu
er nemendum ætlað það hlutverk að vera ó-
virkir þiggjendur. Skólinn er ríkisstofnun, þar
sem dælt er í nemendur ákveðinni þekkingu,
nauðsynlegri til þess að þjóðfélagið haldist
gangandi í sama farvegi. Að vísu er sam-
kvæmt frumvarpinu gert ráð fyrir fulltrúa
nemenda í skólastjórn, en það skiptir sára-
litlu máli. Hann hefur engin bein áhrif, og
virðist ákvæðið að mestu vera sett inn til að
lækka óánægjuraddir.
Nýlega var gerð í Bandaríkjunum kvik-
mynd um einhvern einstaklega venjulegan
Highschool. Þar var nóg af kennslutækjum,
nóg húsrými, fáir svertingjar, sæmilegir kenn-
arar. Myndin þótti vera mjög raunsæ. Hún
sýndi lífsleiða unglinga, ósjálfstæða, óum-
burðarlynda, ófrumlega, undirbeygða undir
„law and order" skólans. Einu nemendurn-
ir, sem virtust vera áhugaverðir, hafa ein-
hvern snefil af persónuleika, voru annaö
hvort fallistar (dropouts) eða á góðri leið