Réttur - 01.08.1970, Side 2
Bandaríkjanna á Vietnam og útfærzla þess vekur vaxandi andúð og viðbjóð
um víða veröld og veldur í æ ríkara mæli pólitískri einangrun Bandaríkjanna
í hópi borgaralegra ríkja.
Uppreisn hinna snauðu þjóða heims gegn heimsvaldastefnu arðráns og
kúgunar verður æ sterkari. Ólafur R. Einarsson ritar í þetta hefti fyrstu grein
af þremur um andstæðurnar milli ríkra þjóða og snauðra. Og heimsviðburð-
irnir sýna að alþýða þessara landa hefur hafið sókn að nýju: Á Ceylon kemst
róttæk alþýðustjórn til valda í kosningum og tveir kommúnistaflokkar, hvar
af annar kennir sig við Trotski, sitja þar saman í stjórn frú Bandaranaike. í
Chile sigrar forsetaefni Alþýðufylkingar. I Perú stjórna þjóðlegir herforingjar
þjóðnýtingaraðgerðum gegn ameríska auðvaldinu, — sem ekki þorir enn að
beita hervaldi að fornum hætti. í Boliviu virðist breyting í aðsigi.
Hagþróun sósíalistísku ríkjanna heldur áfram að vera hraðari en auðvalds-
ríkja, þrátt fyrir ýmsa erfiðleika og viss víxlspor sumsstaðar. En hin pólitísku
vandamál í sumum þeirra — deilur Sovétríkjanna og Kína, hernámið í Tékkó-
slóvakíu — halda áfram að vera áhyggjuefni sósíalista um allan heim. En
þrátt fyrir það heldur hinn sósíalistíski þriðjungur heims áfram að vera valda-
bakhjallur vaxandi frelsishreyfingar alþýðu, jafnt í þróuðum iðnaðarlöndum
sem fátækum, arðrændum löndum hins þriðja heims.
★
,,Réttur“ þarfnast aukinnar útbreiðslu. Því er ýmsum velunnurum hans nú
sent skjal til söfnunar nýrra áskrifenda. Vonum við að þeir bregðist vel við
í verki. En þeir, sem ekki skyldu fá slíkt en vildu þó safna, eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við ritstjórann.