Réttur - 01.08.1970, Blaðsíða 39
Jafnframt vex samstarf olíuhringa og efna-
iðnaðarhringa og það þvert yfir öll landa-
mæri. B.P. í Bretlandi og efnaauðhringurinn
Pechiney í Frakklandi byggja saman efnaiðn-
aðarverksmiðju í Marseille. Shell og vestur-
þýzki efnaiðnaðarjötuninn Badische Anilin
und Sodafabrik (arftaki hins alræmda I.G.F.)
hefja samvinnu og þannig mætti halda áfram
í það endalausa. Það eru t.d. fjögur auðfélög,
sem ráða tveim þriðju allrar þvottaefnisfram-
leiðslu auðvaldsheimsins: Unilever 25%, —
Procter & Gamble (USA) 25%, — Colgate-
Palmolive-Peet (USA) 10% — og Henkel
(V.-Þýzkaland) 10%.
Allir stærstu auðhringirnir eru orðnir
margþjóða, t. d. er Unilever-hringurinn, sem
hefur meir en miljarðs punda höfuðstól og
2,3 miljarða punda veltu á ári, með 320 þús-
iincl starfsmenn og verkamenn í 130 löndum
heims. Hann er 9- stærsti auðhringur heims.
— Eignahlutfallið í Shell, sem hefur 114
þúsund verka- og starfsmenn í ótal löndum
er þannig að 30% fjármagnsins er brezkt,
20% hollenzkt og 20% bandarískt.
Gagnvart litlu ríki eins og Hollandi eru
tveir voldugustu auðhringirnir þar: Philips
og AKU alþjóðahringir og ægivald í hol-
lenzku efnahagslífi. Hjá Philips vinna 244
þúsund manns og hluthafarnir eru í 40 lönd-
um.
Tuttugu stærstu auðfélög Sviss höfðu í fyr-
irtækjum sínum í Sviss 94 þúsund manns, en
í fyrirtækjum sínum erlendis 264 þúsund.
AFe.fr/e-hnngurinn hefur 95% reksturs síns
utan Sviss. (Sjá nánar um auðmagn Sviss í
52. árgangi Réttar, 1969, bls. 185).
Því er svo komið að 200—300 alþjóðleg-
ur auðmagnssamsteypur í framleiðslu og
verzlun auðvaldsheimsins eiga 75% af höfuð-
stól allra iðnaðar- og fjárrnálafyrirtœkja. Og
þessi auðfélög með útibúum og verksmiðjum
innan allra tollkerfa geta sjálf ráðið verð-
laginu, sem þau skýra frá til skatta á hráefn-
um sínum og vörum og skammta sér þannig
skattana, — eins og t.d. Alusuisse gerir á
Islandi.
Fyrir baráttu verkalýðsins gagnvart auð-
mannastéttinni veldur þessi hraðvaxandi al-
þjóðlega samsteypa nauðsyninni á ennþá al-
þjóðlegra samstarfi bæði verklýðssamtak-
anna í kaupgjaldsmálum svo og sósíalistískra
verklýðsflokka á stjórnmálasviðinu. Forusm-
menn ítölsku og frönsku kommúnistaflokk-
anna lögðu sérstaka áherzlu á þetta alþjóðlega
samstarf á sameiginlegum fundi, er þeir héldu
nýlega.
URUGUAY
I því landi, sem eitt sinn var fyrirmyndar-
ríkið í Suður-Ameríku og efnaðasta landið,
— Uruguay , — hefur ástandið farið hríð-
versnandi síðustu ár.
Þetta litla ríki skuldar nú 500 miljónir
dollara erlendis. A tveim árum, frá 1967 til
1969, óx dýrtíðin á nauðsynjavörum um
200%. Atvinnuleysið vex þannig að meir en
10% fullorðinna manna er atvinnulaus.
Landflóttinn síeykst. 4% jarðeigenda eiga um
60 % alls nothæfs lands.
Ríkisforsetinn Pacheo Areco, fyrrum bak-
ari, hefur komið á einræði og bannað vinstri-
flokkana. I fangelsunum er beitt pynding-
um gagnvart stúdentum, verklýðssinnum og
þeim, sem samúð hafa með Tupamaros-sam-
tökunum. Þessi síðarnefnda þjóðfrelsishreyf-
ing kennir sig við Inka-leiðtogann Tupac
Amaru, er stóð fyrir uppreisn gegn Spán-
verjum á 18. öld. Hún nýtur mikillar samúð-
ar hjá alþýðu, rænir þá ríku en gefur þeim
fátæku að hætti Hróa hattar. I apríl 1970
skutu þeir yfirmann leynilögreglunnar, sem
þeir töldu ábyrgan fyrir pyndingunum. Hafa
127