Réttur - 01.08.1970, Blaðsíða 31
Undirrótin er hin tryllta, hamslausa gróðalöngun,
sem fær auðjöfra jarðar til þess að setja framleiðslu
stóriðjunnar á markað mannkynsins án þess að
áður sé gengið úr skugga um skaðleysi afurðanna.
— Menn muna hin óhugnanlegu Thalidomid-mála-
ferli þegar voldugur auðhringur setti á markað efni,
sem olli því að börn fæddust vansköpuð.
Tillitslaus stóriðjuframleiðsla, sem miðast við
gróðasöfnun einvörðungu i stað raunverulegra
þarfa mannanna, er orðin lífshættuleg mannkyninu.
Það verður að taka þessi mál föstum tökum um
allan helm: Gera mengun lofts oq lagar að glæp-
samlegu atferli, framkvæma algera endurskoðun á
allri þeirri stóriðju, sem fyrir er, og skylda eigendur
til þeirra breytinga, sem geri starfrækslu hættu-
lausa eða stöðva hana ella. Það þarf að banna sölu
á efnum eins og DDT og ýmsum fleirum. Það verð-
ur ef til vill lika að banna alla olíuvinnslu á hafs-
botni. Það verður að gerbreyta bílaframleiðslunni
þannig að þeir eitri ekki lengur andrúmsloftið.
Almenningur í heiminum verður að láta þessi mál
til sín taka af fullri alvöru, því auðfélög heims munu
i algeru ábyrgðarleysi að vanda þverskallast við
þeim ráðstöfunum, sem gera þarf af því þær svifta
þau gróða og valda þeim jafnvel tapi. Sú auð-
mannastétt, sem þegar hefur framleitt nóg af atóm-
sprengjum og sýklavopnum til að tortíma öllu mann-
kyni, vílar ekki fyrir sér að standa sem þröskuldur
i vegi þeirra aðgerða, sem aðkallandi eru vegna
framhaldslifs mannanna á jörðinni. Alþýða manna
verður sjálf að knýja umbreytinguna fram og taka
stjórnina á henni i sínar hendur.
Jafnframt baráttunni gegn mengunarhættunni, sem
stafar af tillitslausri gróðafýkn stóriðjuhölda auð-
valdsríkjanna, verða hin sósíalistísku ríki einnig
að vera á verði i þessum efnum. Eins og þau hafa
orðið að framleiða eyðingarvopn til varnar sér i
„jafnvægisleik ógnanna", svo hefur og þörfin á
skjótri iðnvæðingu leitt til þess að viða hafa þessi
mál ekki verið athuguð í tíma og þarf nú að bregða
við af krafti.
Þegar við Islendingar tökum þessi mál fyrir af
alvöru og skipum þær stofnanir, sem varðveita
skulu heilbrigt umhverfi i landi voru og sjó, eftir
því, sem við ráðum við, þá er brýnasta nauðsyn á
að slíkar stofnanir, stjórnir þeirra og sérfræðingar,
séu algerlega óháðar þeim auðfélögum, sem meng-
unarhættunni valda og erindrekum þeirra, sem
ekkert sjá nema vonina um gróða.
Svona auglýsing hefur birzt í amerískum blöðum
frá náttúruverndarsamtökum vegna DDT- magnsins
í likama manna, sem orðið er brjóstmylkingum
hættulegt.
Álverksmiðjan í Straumsvík er þegar farin að
eitra sitt umhverfi og vaidaaðilar reyna að bæla
niður umræður um það og hindra aðgerðir gegn
hættunni. Samtímis er undirbúin margföldun verk-
smiðjunnar. Og einnig nyrðra er nauðsynlegt að
staðið sé á verði.
119