Réttur


Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 6

Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 6
tala jarðar verði þá komin upp í 50.000 miljónir. Nú munu um 67% jarðarbúa búa í þró- unarlöndunum, en 33% í hinum ríku iðn- aðarríkjum Evrópu og Norður-Ameríku. Fólksfjölgunin er mun örari í þróunarlönd- unum og því mun um árið 2000 um 79% jarðarbúa lifa í Asíu, Afríku og rómönsku Ameríku, en aðeins 21 % í þróuðum iðnaðar- ríkjum. Hvað einstaka heimsálfur snertir, þá má t.d. nefna að í rómönsku Ameríku bjuggu um aldamótin 60 miljónir manna, en nú lifa þar um 270 miljónir og um árið 2000 rúm- lega 700 miljónir manna. Aldrei fyrr í sögu mannkyns hefur maðurinn staðið augliti til auglits við svo gífurlega fólksfjölgun. Meðal barnafjöldi hverrar fjölskyldu í hinum ýmsu heimsálfum er sem hér segir: Börn á hverja fjölskyldu í þróunarlöndunum 5,3 — 5,5 I iðnaðarríkjunum 2,9 í Afríku ............ 6,1 í Asíu .............. 5,1 — 5,5 I rómönsku Ameríku 5,7 í Evrópu ............ 2,7 í Norður-Ameríku . . 3,7 I Sovétríkjunum 2,9 I heiminum .......... 4,5 — 4,7 Það að fjölskyldustærðin er meiri í þró- unarlöndunum má að nokkru skýra með því að þar stunda yfirleitt um 80—90% íbú- anna landbúnað og meiri barnafjöldi veitir foreldrum aukið og ódýrt vinnuafl um leið og barnið er komið á legg. Þó ber þess að geta, að barnadauðinn er einnig mestur í þróunarlöndunum. Athyglisvert er að kanna hvernig íbúatala skiptist á heimsálfur í dag og útlitið um næstu aldamót. Sameinuðu þjóðirnar hafa birt eftirfarandi yfirlit um skiptingu íbúa á heimsálfur og lönd: Árið 1968 Árið 2000 miljónir miljónir Bandaríkin 200 350 Rómanska Ameríka 270 760 Evrópa . 460 570 Afríka . 330 850 Sovétríkin . 240 400 Kína . 730 1480 Indland . 520 1330 Japan 100 140 Aðrir hlutar Asíu . 590 1550 Kanada og Astralía 40 70 Augljóst er af þessu yfirliti Sameinuðu þjóðanna um fólksfjölgun í heimsálfum næstu þrjá áratugi, að í þeim löndum þar sem matvælaástandið er verst í dag, þar er mestrar fólksfjölgunar að vænta. Fyrir 120 árum þegar íbúatala jarðarinn- ar var aðeins 1000 miljónir, þá var þéttbýlið ekki meir en svo að 50.000 fermetrar voru á mann. Nú er svo komið að þessi tala hefur lækkað niður í 15.000 m2. Um næsm alda- mót verða 8.000 fermetrar á mann og er 94

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.