Réttur - 01.08.1970, Page 7
íbúatalan hefur náð 50.000 miljónum árið
2120 þá verða aðeins 1200 fermetrar á mann.
Vandamál fólksfjölgunar verður augljósara
þegar litið er á það, að öllum þessum miljón-
um þarf að veita fræðslu og húsnæði. Ara-
tugurinn frá 1960—1970 var nefndur fyrsti
þróunaráratugurinn, og átti að vinna ötul-
lega að framförum í þróunarlöndunum. Þrátt
fyrir alla viðleitni þann tíma, jókst tala þeirra
sem hvorki eru læsir né skrifandi.
Hér hafa verið dregnar upp myndir af
væntanlegri fólksfjölgun í heiminum. Nú-
verandi stjórnarhættir, misrétti og kúgun
hefur skipt heiminum í ríkar og snauðar þjóð-
ir sem ekki geta fullnægt fæðuþörf íbúanna
í fjölmennustu heimsálfunum. Miðað við nú-
verandi skipan mála er því fólksfjölgun í
dag að verða vandamál, ef ekki verður unninn
bugur á óréttlátri skiptingu heimsins gœða.
Það mun ekki mögulegt nema þriðja heim-
inum takist að losa sig undan yfirdrottnun og
arðráni „höfuðbólanna" (þ. e. heimsvalda-
stefnunnar) og að gerbylta þjóðfélagshátt-
unum í hinum snauðu ríkjum.
95