Réttur


Réttur - 01.08.1970, Page 12

Réttur - 01.08.1970, Page 12
því ber flokknum að starfa, því að stefna hans er í því fólgin að brjóta af sér ramma auðvaldsþjóðfélagsins. MILLIFLOKKAR Það sem m.a. greinir skiptingu fylgis á flokka á Islandi í nokkuð sérstæðan bás, er gífurlegt fylgi milliflokka. Þannig hafa Al- þýðuflokkurinn og Framsóknarflokkurinn haft 35 til rúmlega 40% alls fylgis. Þetta mikla fylgi milliflokka stafar af ýmsum ástæðum, en ekki sízt þeirri að hinir flokk- arnir hafa ekki haft skýra valkosti. „Allir flokkarnir eru eins" segir almenningur að vonum. „Þeir hafa allir verið í stjórn ein- hverntíma og ég held það sé sama hver þeirra er við völd." Þessar staðhæfingar almennings eru þungur áfellisdómur fyrir stefnu og starf sósíalísks flokks sem á að skera sig úr vegna þess að hann er á móti „kerfinu” eins og það starfar. Fylgi milliflokkanna er að verulegum hluta fylgi sem unnt ætti að vera fyrir sósí- alískan flokk að ná til; flokk sem hefur skýra valkosti upp á að bjóða — jákvæða og glögga útvegi úr vítahring auðvaldsþjóðfélagsins. Þarna bíður eitt stærsta verkefni íslenzkra sósíalista í dag: Að skýra stefnu flokks síns —móta einfaldar og glöggar dægurkröfur sem eiga víðtæka og almenna skírskotun til almennings. Með því móti mætti fá skýrari línur í íslenzk stjórnmál, skerpa myndina og auðvelda að leysa úr flækjunni. Það er ein- mitt þetta sem þarf að verða niðurstaða næstu alþingiskosninga, ella framlengja þær aðeins þá talnaröð sem hér hefur verið rakin að framan um afstöðu íslenzkra kjósenda. Hvaða áhrif hefði veruleg fylgisaukning Alþýðubandalagsins í næstu kosningum? Það verðar ekki rakið nákvæmlega hér, en veru- leg fylgisaukning Alþýðubandalagsins gæti í dag haft svipuð áhrif á gang íslenzkra þjóð- mála í dag og nýsköpunarstjórnin hafði á sínum tíma: Styrkara Alþýðubandalag gæti snúið við frá öfugþróun „viðreisnarinnar", gróðahyggjunnar og erlends fjármagns. Styrk- ing milliflokkanna þýðir hins vegar aðeins eitt: Samstarf þeirra við íhaldið í undirgef- inni hlýðni við boð þess og bönn. Þannig geta kosningar að þessu sinni breytt einhverju — þær verða að breyta íslenzka þjóðfélaginu í þágu Islendinga. 1) Það þarf sjálfsagt ekki að skýra fyrir les- endum þessa tímarits hvað er átt við með borgaralegu þjóðfélagi, þjóðfélagi borgara- stéttarinnar. Til athugunar og umhugsunar er þessi tilraun þó gerð hér til skýringar: A Islandi er ríkjandi efnahagskerfi auðvaldsins, kapítalismi, þannig að launafólk skapar með vinnu sinni meginhluta af verðmæti þjóðar- fi'amleiðslunnar, en yfirstjórn þýðingarmik- illa atvinnutækja og ráðstöfun á framle'ðsl- unni er yfirleitt í höndum aðila sem ekki eru háðir aðhaldi af hálfu framleiðendanna, launamanna. Þessir aðilar gera sér gróðalind úr ráðsmennsku sinni — þar er um að ræða borgarastéttina í íslenzku þjóðfélagi, sem hef- ur úrslitavald í efnahagsmálum og því þýð- ingarmest áhrif á ríkisvaldið. Aðalstéttir þjóð- félagsins eru því tvær: Verkalýðsstéttin sem lifir á því að selja vinnuafl sitt — þ.e. sú stétt sem stundum er kölluð launamenn — og borgarastéttin sem arðrænir verkalýðsstéttina, en í arðráninu felast tilveruskilyrði hennar. 100

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.