Réttur - 01.08.1970, Síða 13
JOHN LEWIS:
MARX
ÖLDIN
Karl Marx sem stúdent i Bonn 1836.
Dr. John Lewis er mikilvirkur rithöfundur og einn
kunnasti marxisti Breta. Hefur hann einkum skrifað
margar bækur um heimspekileg efni. Á árinu 1965
kom ut eftir hann bók um ævi og kenningar Karls
Marx, „The life and teaching of Karl Marx“. Er það
inngangskafli þeirrar bókar, sem birtist hér i þýð-
ingu Sigurðar Ragnarssonar. (Millifyrirsagnir eru
þýðanda).
Einn af harðskeyttustu gagnrýnendum marxism-
ans á okkar tið hefur látið eftirfarandi orð falla: ,,Ef
gefa ætti nafn því timaskeiði sem við lifum á, lægi
beint við að kalla það Marxöldina"1). Sá tími er
liðinn, að hægt var að fjalla um marxismann sem
eitthvert lítilvægt fyrirbæri. Þessu til rökstuðnings
nægir að benda á, hve margir telja sig fylgjendur
hans og hversu mikið stjórnmálalegt vald þeirra er.
Það verður að lita á Marx sem áhrifamikla persónu
*) Dr. Leopold Schwarzschild, The Red Prussian
(Rauði Prússinn). Á enskunni er notað orðið ,,Marx-
ian era", svo öld er hér notað eins og i „forn-
öldin," „endurreisnaröldin'1 o. s. frv.
101