Réttur


Réttur - 01.08.1970, Síða 18

Réttur - 01.08.1970, Síða 18
lagið hlýtur óhjákvæmilega að vera sú umgjörð, sem mestu ræður um tiIveruskilyrði frelsisins og persónuleika einstaklingsins".1) I þessum ummælum felst að sjálfsögðu alger af- neitun hugmyndarinnar um „manninn sem efnahags- veru". Marx hélt þvi heldur aldrei fram, að vonin um eigin ávinning ætti að vera kveikjan í baráttu verkalýðsstéttarinnar. Það er að vísu satt, að menn hljóta óhjákvæmilega að berjast fyrir fullnægingu frumþarfa sinna, sem um leið eru þarfir þeirrar stéttar, sem þeir tilheyra. En þeir vilja líta á þessar þarfir sem þarfir stærri hóps, reyndar sem þarfir þjóðfélagsins í heild. Hlutskipti verkamannsins er nefnilega það, að barátta hans fyrir stéttlausu þjóðfélagi er í þágu þjóðfélagsins alls. Hann sækist þess vegna ekki eftir ávinningi fyrir sjálfan sig einan, heldur berst hann fyrir velferð samfélagsins og vonar, að hann muni njóta góðs af henni...... EFNISHYGGJA MARX Var Marx þá efnishyggjumaður, annaðhvort í þeim skilningi, að hann taldi breytni mannsins markast af þeirri hvöt einni að óska sér stöðugt aukinna efnls- legra gæða eða þæginda eða í þeim skilningi, að hann í heimspekiskoðun sinni leit á öll fyrirbæri hugræns eða andlegs eðlis sem hreyfingar efnis- ins? I raun og veru var Marx eindreginn andstæð- ingur „hinnar hlutfirrtu efnishyggju raunvísindanna, sem lét sig engu skipta söguna og ferli hennar”. Á okkar dögum mundi maður kenna skoðun hans á eðli lífsins og mannlegrar tilveru við náttúruviðmið- un eða húmanisma (mannhyggju), en hann leit svo á, að hugsunin væri jafn raunveruleg og sjónin, þar sem önnur ætti upptök sin í auganu, en hin i heilanum. Sú „efnislega rannsóknaraðferð" sem Marx talar um og sem greinir skoðanir hans frá skoðunum Hegels, felur í sér rannsókn á hinum raunverulegu efnahagslegu og félagslegu lífsskil- yrðum mannsins og þá verður jafnframt að taka ') Marx, Die Pariser Manuschriften (Parísarhand- ritin). á þessu ömurlega ástandi? Marx svaraði þessu í fyrstu sósíalisku ritsmíð sinni á þann veg, að það ætti að gera með því að skipuleggja allt fram- leiðslustarf á samvinnugrundvelli, þannig að það þjónaði þörfum mannsins. Vandinn var sá ,,að skipa svo málum i umhverfi mannsins, að maðurinn skynji það sem mannlegt samfélag i orðsins fyllstu merk- ingu. Aðeins i slíku samfélagi mun maðurinn geta sýnt manngildi sitt í samskiptum við aðra. Þjóðfé- Marx 1861. > 106

x

Réttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.