Réttur


Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 33

Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 33
Hvernig stendur á að alþýða manna sættir sig við þennan vitahring, — að hlaupa hratt til að standa i stað?* Voldugustu fjölmiðlarnir telja henni trú um að verðhækkanirnar séu einskonar óhjákvæmilegt lög- mál ( — og að nokkru er búið að binda þær í lög). Hún verði þvi að sætta sig við þetta. Hverjir eiga þessa fjölmiðla og ráða þeim? Valdastéttin sjálf og þá fyrst og fremst stór- kaupmannastéttin, sem beinlínis á Morgunblaðið og ræður sjónvarpi og útvarpi og hagnýtir í sina þágu til þess að dylja þennan skollaleik fyrir al- menningi og rugla hann í rímjnu. Hvaða áhrif hefur það á þennan „vitahring", að erlent auðvald fær nú mikla hlutdeild í „islenzku" efnahagslifi? Sá hópur íslenzkra valdamanna, sem vinnur að því sleitulaust að fá útlend auðfélög inn í landið, reynir að „lokka" þau með lágum launum íslenzkra verkamanna. Þessir valdamenn munu því vinna að því að halda laununum lágum, þ.e. fella gengið jafn- óðum sem kaupgjald hækkar eða beita þrælalögum, ef þau eru ekki brotin á bak aftur. Getur verkalýðurinn með faglegri baráttu ein- vörðungu hækkað kaupmátt launa sinna varanlega? Reynslan sýnir að það er mjög takmarkað. Þar sem það aðhald vantar í íslenzkt stjórnmála- líf, sem erlendis tryggir sæmilega festu í verðlags- málum, mun atvinnurekendastéttin í krafti síns póli- tíska valds, rikisvaldsins, beita því til að ná sér niðri eftir ósigra sína í kaupdeilum. Verkalýðurinn er faglega svo sterkur og sameinaður að atvinnu- rekendastéttin sigrar hann ekki í kaupdeilum, — getur ekki knúið fram kauplækkanir i krónutölu. Hinsvegar ræður atvinnurekendastéttin ríkisvaldinu (rikisstjórn, alþingi, bönkum etc.) og beitir þvi lil þess að ræna frá verkalýðnum því, sem hann hefur unnið i kaupgjaldsbaráttunni. Venjulega verða ýms- ar umbætur og réttindi, sem verkamenn knýja fram i vinnudeilum, varanlegri en kauphækkanir — og er þó margt af sliku hálfsvikið i framkvæmd á eftir. * Sjá grein i Rétti 1969, „Kaupgjald og rikisvald", bls. 68—74. Hvaða aðferðum lætur atvinnurekendastéttin rík- isvaldið beita? Aðalaðferðin er að hækka verðlagið jafnóðum, stundum að banna svo vísitölugreiðslur á kaup, — stundum lækka krónuna, fjórum sinnum siðasta áratug, — stundum að setja gerðardóma á kaup- gjald, — stundum að banna kauphækkanir — stundum að banna verkföll. öllum þessum kúgunar- aðferðum hefur rikisvald atvinnurekendastéttarinnar beitt síðustu 30. ár. Hvernig getur verkalýðurinn gert hvorttveggja i senn: að bæta kjör sin og stöðva verðbólguna að mestu? Verkalýðurinn getur það einvörðungu með þvi að ná úrslitaáhrifum á ríkisvaldið, ná svo sterkum tökum á því að það verði ekki notað á móti hon- um, en hann geti hinsvegar beitt þvi til að hindra að öllum kauphækkunum sé velt út i verðlagið. Þannig yrði skapað það aðhald að atvinnurekendum að þeir yrðu i sifellu að bæta rekstur sinn, skera niður óhóf og eyðslu í atvinnulífinu og koma at- vinnulífinu i heild á hærra tækni- og skipulagsstig. Til þess að ná slikum tökum á rikisvaldinu, þarf verkalýðurinn að verða eins sterkur og sameinaður á stjórnmálasviðinu og hann er á faglega sviðinu. Rikisvald, sem verkalýðurinn er úrslitaaðili að, gæti þannig í senn orðið það aðhald, sem hefur vantað til að skapa festu i verðlagið, og sú trygging, sem launafólk hefur saknað til að tryggja að launahækk- anir þess yrðu raunverulegar. — Auðvitað gerir þetta kröfu til þess að verkalýðurinn kynni og að stjórna samkvæmt sínum hag og þjóðarheildarinnar á öðrum sviðum þjóðlífsins, — en það er annað mál. 121

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.