Réttur


Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 36

Réttur - 01.08.1970, Qupperneq 36
Undirritun sovézk-vesturþýzka samningsins í Moskvu. ræðiserfðum Jefferssons, Lincolns og Roose- velts, — William Fulbright, — hljómar nú oft sem rödd hrópandans í eyðimörkinni. En rödd kúgaðrar alþýðu úr undirdjúpum þjóð- félagsins og hugsjónaríks stúdentafjölda er meir og meir svarað með byssukúlum aftur- haldsins. Og þegar fjórir stúdentar eru skotn- ir til bana í Ohio — sjálfu „biblíubelti" Bandaríkjanna, — þá stoðar lítt þó Billy Graham, predikari Nixons og Morgunblaðs- ins falli á kné og hrópi: „O, Guð minn, hvað er orðið um okkur, þegar slíkt getur gerzt í Bandáríkjunum". Borgaraafturhaldið forherð- ist við hvert blóðbað, heimtar meiri vopn og bann við öllum mótmælum. Hitlerisminn kæmi til með að taka á sig önnur form í Bandaríkjunum en í Þýzkalandi 1933, stjörnufáninn en ekki hakakrossinn yrði tákn hans. En hinu má ekki gleyma, hættan á ein- ræði afturhaldsaflanná þar og hruni hins borgaralega lýðræðis vex með hverjum degi. Og það einrœðisvald hefði þau atúmvoþn, sem Hitler skorti til að hóta að tortíma heim- inum ef eigi yrði undan látið. Sósíalistisk verklýðshreyfing heimsins sem og öll borgaraleg lýðræðis- og frelsisöfl, al- þýðuríki veraldar sem borgaraleg lýðræðis- ríki, þurfa að horfast af fullri djörfung í auga við hættuna og af meira raunsæi og skilningi en forðum, þegar það var þó aðeins illa vopnað Þýzkaland er varð fasismanum að bráð 1933. En nú er það alvopnaðasta her- veldi heims, sem á hættusvæðinu er. En vissir íslenzkir valdhafar eru nú marg- falt blindari fyrir hcettunni en þeir voru 1933 — og voru vissulega slæmir þá, en þó ekki svo að þeir afhentu nazistum flugstöðvar hér, er þeir óskuðu þess 1939. — En nú þegar hafa Bandaríkin hér eina af stærri flugstöðv- um heims, her og flota og óhugnanleg tök. á ríkisstjórn og almenningsáliti. Mál er að linni. i 124

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.