Réttur


Réttur - 01.08.1970, Side 40

Réttur - 01.08.1970, Side 40
þeir hert á bardagaaðferðum sínum upp á síðkastið, vafalaust vegna pyndinga lögregl- unnar á félögum þeirra í fangelsunum. Rán- in á sendimönnum erlendra ríkja eru beztu dæmin. Aður vöktu mesta athygli verk eins og t.d. innbrot þeirra í spilavíti auðkýfinga, þar sem þeir rændu jafnvirði ca. 20 miljóna ísl. kr., en skiluðu drykkjupeningum þjón- anna, — eða er þeir rændu bankaeiganda einum og neyddu hann til að gefa fé til að byggja sjúkrahús fyrir verkamenn og einn alþýðuskóla. Tupamaros hreyfingin er greini- lega mjög vel öguð og skipulögð. SUÐUR- AFRlKA Samkvæmt skýrslum Sameinuðu þjóðanna fer helmingur af öllum þeim aftökum, sem fram fara í heiminum, fram í Suður-Afríku. Það er vegna hagsmuna enskra og banda- rískra auðfélaga í því fasistaríki, að ákvarð- anir Sameinuðu þjóðanna gegn Apartheid fást ekki framkvæmdar til fulls. Á Roben Island, djöflaeyja fasistanna, dveljast hundruð pólitískra fanga, þar á með- al Abram Fischer, Nelson Mandela o.fl. Einn pólitískur fangi, George Mduduzi Mbela, sem var þar í fimm ár, lýsti nýlega í tímaritinu „Sechaba", málgagni African National Con- gress, hinum svívirðilega aðbúnaði fanganna og flutti kveðju frá þeim. Uti fyrir fangelsunum heldur hin fasistiska kúgun áfram: Frú Winnie Mandela, kona leiðtogans, hafði ásamt 20 öðrum ákærðum verið sýknuð af ákærum í febrúar — og verið handtekin um leið — og átti ásamt hinum að koma fyr- ir rétt aftur í ágústbyrjun, en þá var sagt að hún væri „of veik”. Ymsir af föngunum höfðu 128 Frú Mandela (t.h.) 1962 við réttarhöldin i Pretoríu. auðsjáanlega verið pyntaðir. í ágústlok hóf- ust svo réttarhöldin og átti frú Mandela og fleiri þjóðfrelsissinnar dauðadóm yfir höfði sér. Þrír, sem ekki komu, voru sagðir myndu bera vitni, — hafa sem sagt verið píndir til að bera ljúgvitni, — en einn þeirra kom síðar fram á geðveikrahæli og var auðsjáanlega breyttur maður og mundi ekkert hvað gerzt hafði síðustu 100 dagana. En 19 af 20 sak- borningum voru í september sýknaðir fyrir dómstólnum. En fasistastjórnin mun ekki létta ofsóknunum þessvegna. Ihaldsstjórnin brezka hefur nú tekið upp stuðning við fasistana í Suður-Afríku með því að selja þeim vopn, svo sem Frakkland og V.-Þýzkaland hafa gert, en ríkisstjórn Wil- sons hafði hins vegar neitað því. CABORA BASSA Cabora-Bassa-stíflan í ánni Sambesí í Mos- ambík í Afríku á að verða einskonar efna-

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.