Réttur - 01.08.1970, Síða 44
C. H. Hermansson á fundi i heimsókn hans til fslands. Á myndinni eru (frá vinstri) Svavar
Gestsson, C. H. Hermansson, Ólafur R. Einarsson og Ragnar Arnalds.
SVÍÞJÓÐ
Urslit þingkosninganna í Svíþjóð 20. sept-
ember, þegar kosið var í fyrsta sinn eftir nýju
stjórnarskránni til einnar deildar, urðu þau
að sósíaldemókratar fengu 163 þingsæti,
kommúnistar (Vinstriflokkurinn — Komm-
únistar) undir forystu C. H. Hermansson 17
þingsæti, en borgaraflokkarnir samtals 170.
Ríkisstjórn Olav Palme situr því áfram
með aðstoð kommúnista.
Sósíaldemókratastjórnin sænska hefur haft
þá sérstöðu meðal sósíaldemókratískra stjórna
að standa upp í hárinu á ríkisstjórn Banda-
ríkjamanna, viðurkenna stjórn Norður-Viet-
nam og sýna þannig í verki á fleiri sviðum
pólitískt sjálfstæði gagnvart amerísku heims-
valdastefnunni. Hinsvegar byggir stjórnin á
vissri samvinnu við sænska auðvaldið, þó hún
svo ætli sér að framkvæma ofurlitla þjóðnýt-
ingu á mjög takmörkuðu sviði, en setur hins-
vegar all róttæka löggjöf í mörgum félags-
málum.
Sænsku kommúnistarnir háðu harða bar-
áttu fyrir að komast yfir 4% fylgisins, en
það var skilyrði til uppbótasæta og þarmeð
þingsæta í hlutfalli við fylgið. Þótti það tví-
sýnt, þar sem þeir höfðu aðeins 3% við síð-
ustu bæjarstjórnarkosningar. En þeir sigruðu
og fengu 4,9%. Er það mjög þýðingarmikill
sigur eigi aðeins fyrir þá, heldur og alla rót-
tæka sósíalista á Norðurlöndum og getur orð-
ið til þess að snúa straumnum við eftir áföll
þau, sem róttækir sósíalistar, — bæði komm-
únistar og vinstri-sósíalistar, — hafa orðið
fyrir í Danmörku, Noregi og Finnlandi.
Sænsku kommúnistarnir gagnrýndu stjórn
sósíaldemókrata fyrir samvinnu hennar við
auðvaldið, mörkuðu skýra stefnu vaxandi
verklýðsáhrifa í atvinnu- og stjórnmálalífinu
og harðari baráttu fyrir bættum lífskjörum
og auknum réttindum verkalýðs á vinnu-
stöðvum og í þjóðlífinu öllu. Beinist barátta
þeirra mjög gegn allri þátttöku Svía í Efna-
hagsbandalaginu.
Sú sókn borgaraflokkanna, sem steypti
sósíaldemókratastjórnum Danmerkur og Nor-
egs og leiddi til minnkandi verklýðsfylgis í
Finnlandi, hefur nú verið stöðvuð. Ríður nú
á að sósíaldemókrötum í Svíþjóð skiljist nauð-
132