Réttur


Réttur - 01.01.1973, Page 28

Réttur - 01.01.1973, Page 28
Albert Einarsson: Heimsvalda- stefna EBE — og Bandaríkin HVAÐ ER HEIMSVALDASTEFNA? „Lítum svo á, a8 við töpum Indó-Kína. Falli Indó- Kína mun skaginn — síðasta landræman þar, varla verða varin. Við fengjum ekki lengur þaðan tin og tungsten, sem við leggjum svo mikla áherzlu á að fá. Á sem kostnaðarminnstan hátt reynum við að hindra allt það, sem gæti haft alvarlegar afleiðing- ar í för með sér fyrir öryggi Bandaríkjanna, fyrir valdastöðu okkar og eiginleika okkar til að fá þá ákveðnu hluti, sem við óskum eftir af þeim auð- æfum, sem finnast í Indó-Kína og Suðaustur-Asíu." Þannig hljóðaði útskýring Eisenhowers forseta, þegar hann stefndi bandarískum hermönnum til VI- etnam árið 1954. Tilvísunin lýsir kjarnanum I heimsvaldastefnunni. Þjóðarmorðið I Vietnam er heimsvaldastefnan I verki. Eitt riki ræðst með hervaldi sínu á þjóð ann- ars lands, kúgar hana og arðrænir, I þeim tilgangi að verða sér úti um ódýrt vinnuafl, einskonar þræla. Til þess að heimsvaldasinnar geti framkvæmt stefnu sina verða þeir að hafa pólitíska stjórn þeirra landa, sem þeir kúga, I sinum höndum. Þeir styðja þess vegna þá stétt eða hagsmunahópa til valda, sem sjálf græðir á að almenningur sé arð- rændur. Þess vegna staðsetja þeir herstöðvar sinar I eða nálægt löndum þeim, sem þeir kúga og sam- tímis gera þeir kúguðu löndin sér efnahagslega háð.1) Heimsverzluninni er stjórnað af fáum stórum auðhringum, sem hafa úrslitaáhrif á rikisvald heimsvaldasinnuðu landanna (sbr. áhrif auðhring- anna á kosningabaráttu í Bandaríkjunum og V- Þýzkalandi).-) Þessir stóru auðhringar eiga stærsta hluta iðnaðarins og hráefnaauðlindanna í þriðja heiminum, en mestur hluti hráefnanna er fluttur til iðnaðarlandanna til fullvinnslu og sölu. T. d. lifir Ghana nær eingöngu af kakóframleiðslu. Með því að beita Ghana þvingunum, efnahagslegum og hernaðarlegum, er auðvelt fyrir auðhringana að sjá svo um að framleiðsla Ghana verði ekki fjölskrúð- ugri þar sem þá yrði erfiðara að kúga landið til hlýðni. Með þvi að selja Ghana ekki þær vörur, sem fólk þarf á að halda og ekki eru til í landinu, neita því um lán eða neita að kaupa kakóið o. s. frv. er landinu haldið í járnkló auðvaldsins og það verður að hlýða. Slík lönd eru hálfnýlendur. Að nafninu til eru þau frjáls lönd, en í rauninni eru þau kúguð og neydd til að fylgja þörf auðvaldsins fyrir aukinn arð og sveiflunum I auðvaldskerfinu. 28

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.