Réttur


Réttur - 01.01.1973, Blaðsíða 61

Réttur - 01.01.1973, Blaðsíða 61
á þá 1879, til að undiroka þá, og höfðu eðli- lega margt betri vopna, svo sem Bandaríkja- menn nú í Vietnam. Segir Engels svo: ,,Þeir hafa afrekað það, sem enginn evrópskur her getur gert. Byssulausir, með lenzur einar og kastspjót að vopni, óðu þeir gegn kúlnaregninu ur bakhlaðningum fótgönguliðsins brezka. Allt fram að byssustingjunum. Er þessi herdeild Bretanna þó talin sú færasta i heimi I návigi, en samt hafa fyrrnefndir þjóðflokkar hvað eftir annað riðlað fylkingar hennar og jafnvel stökkt henni á flótta. Og þetta hafa þeir afrekað, enda þótt geysimunur hafi verið á vopnabúnaði og þeir sjálfir hafi enga herþjónustu — eða heræfingatíma. Englendingar hafa kvartað yfir því, að Kaffar geti komizt lengri dagleiðir fótgangandi en ríðandi menn, og sýnir það bezt, hve þolgóðir og afreksmiklir þeir eru. Enskur málari komst einhvern tíma svo að orði: „Hver vöðvi þeirra er harður og stæltur líkt og keyrisól." — Þannig var mönnunum og mannfé- laginu háttað áður en stéttaskiptingin kom til sög- unnar." Bretum tókst þó að lokum að brjóta Zulua á bak aftur og halda nú Búar þeirri kúgun áfram, en reyna að gefa harðstjórn sinni „sæmilegri” svip með því að knýja hörunds- dökku þjóðflokkanna til að búa á afmörkuð- um, lélegum landsvæðum („Bantustan"), en þykjast veita þeim vissa sjálfstjórn innan þessara svæða. En Zuluar virðast varðveita vel arfgenga frelsisþrá og stolt kynstofns síns, þrátt fyrir alla kúgun. Þrír Zular skulu nefndir hér: Jóhannes Nkosi (1905—1930) var einn af brautryðjendum Kommúnistaflokks Suð- ur-Afríku. Hann var upphaflega landbúnað- arverkamaður, fór síðan til Johannesburg og vann þar að myndun verklýðssamtaka. Af því hann var Zului að uppruna, sendi flokk- urinn hann til Natal, til að koma upp flokks- starfsemi þar og tókst honurn það vel. 16. desember 1930 skaut hvíta lögreglan á hann á. fundi, er hann hélt í Durban, fór síðan á brott með hann í lögreglubíl og barði hann til bana. Loka skilaboð hans, á Zulu-máli, voru þessi: „Til verkamanna Suður-Afríku: Aldrei undir sólinni hefur þjóð verið keyrð í slíka þrældómshlekki sem við. Við megum ekki einu sinni láta í ljós skoðanir okkar á ástandinu á móðurjörð vorri. Hví ekki að vakna og rísa á fætur? Karlmenn, konur og stúlkur, við verðum að styðja þau samtök, sem berjast fyrir frelsi voru." Albert Lutuli, svartur höfðingi af Zulu- kyni, varð heimsfrægur, er hann fékk friðar- verðlaun Nobels 1960, fyrstur blökkumanna, fyrir baráttu sína gegn „Apartheid", aðskiln- aðarstefnu fasistastjórnarinnar í Suður-Afríku. Lutuli voru bönnð afskipti af stjórnmálum og undir lögreglueftirliti varð hann að lifa — og deyja 1967. Gatza Buthelezi (44 ára) er nú forsætis- ráðherra „Zulu-lands". Zuluþjóðin, fjórar miljónir manna, lifir á einu hinna takmörk- uðu svæða, þar sem meining fasistastjórnar- innar er að loka 15 miljónir Afríkumanna, 70% íbúanna á 13% af landinu og það versta gróðurlandinu. Buthelezi er sagnfræð- ingur að mennt og alls óhræddur við að hag- nýta til hins ýtrasta þá möguleika, sem Af- ríkumönnum eru veittir. Hann ætlar sér að koma á grunnskóla jafnan fyrir alla þjóð- flokka og skipuleggja landbúnaðinn á sam- yrkjugrundvelli. Og hann hneykslar hvítu herrana, sem eru að reyna með lýðskrumi að breiða yfir kúgunina: A „pressuballi" í Kap- stadt í nóvember s.l. dirfðist hann að dansa við konu vinar síns, hvíts blaðamanns. Móðg- aðir gestir fóru af dansleiknum og innanrík- isráðherrann blandaði sér í málið. En lýð- skrum stjórnarinnar kom henni í koll. Það er ekki hægt að segja við opinberlega viður- kenndan forsætisráðherra:„Við dönsum ekki við Kaffa." Zulu-þjóðin mun sem aðrar undirokaðar Afríkuþjóðir berjast á hinn margvíslegasta hátt fyrir frelsi sínu unz sigur er fenginn. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Réttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.