Réttur - 01.01.1973, Blaðsíða 38
í Karl Marx-háskólanum í Leipzig var
Angela gerð að heiðursdoktor háskólans. Yar
hún þriðji Bandaríkjamaðurinn, sem hlaut
þann heiður. Hinn fyrsti var prófessor
William Du Bois (1868—1963), vísinda-
maður, rithöfundur og stjórnmálamaður í
senn, annar var Paul Robeson.
Áður en Angela Davis kvaddi var henni
boðið sem sérstökum heiðursgesti á 10.
heimsmót æskufólks og stúdenta í Berlín
sumarið 1973. Fjöldaviðtökurnar, sem hún
fékk höfðu verið stórfenglegar: 80.000
manns á gamla markaðstorginu í Magdeburg,
200.000 manns á Karl Marx-torginu í Leip-
zig.
Angela sagði um þessar móttökur og gildi
þeirra:
„Bræðurnir og systurnar sem fögnuðu
okkur við komuna, hafa ástæðu til gleði
sinnar; þau fögnuðu ásamt okkur í Berlín,
Magdeburg og Leipzig sigri síns eigin
valds, sigri alþjóðahyggju verkalýðsins og
stéttasamstöðu alls verkalýðs veraldarinn-
ar, sem vannst í dómsalnum í San José fyr-
ir sameiginlegt átak fjöldans. Það var ekki
sigur einnar persónu, heldur sigur mikils
málstaðar, sameiginlegs málstaðar okkar
allra. Það sýnir að við erum nógu sterk
til þess að greiða heimsvaldastefnunni
fleiri högg, að við getum barizt til að
frelsa enn fleiri pólitíska fanga, og líka
vinna að lokum stríðsins í Víetnam...
Verið þið sælir, vinir, sjáumst á 10. heims-
móti æsku og stúdenta í Berlín sumarið
1973".
Með Angelu var á þessu mikla ferðalagi
Kendra Alexander, meðlimur í miðstjórn
Kommúnistaflokks Bandaríkjanna, og maður
hennar, Franklin Alexander, meðlimur í
flokksráði sama flokks, en þau voru meðal
höfuðskipuleggjenda „Free Angela Davis"-
nefndanna í Bandaríkjunum.
39