Réttur - 01.01.1973, Side 29
AFLIÐ AÐ BAKI
HEIMSVALDASTEFNUNN!
Vinstri menn og þá einkum sósíalistar og komm-
únistar eru oft ásakaðir fyrir að kalla bandarikja-
menn, v-þjóðverja og ibúa annarra auðvaldslanda
,,slæmt fólk". Er þetta rétt?
Nei. Alþýðan í heimsvaldasinnuðu löndunum ósk-
ar hvorki eftir heimsvaldastefnunni eða græðir á
henni. Þeir sem græða á henni eru aðeins lítill
hópur auðmenna og fylgisveinar þeirra. Heims-
valdastefnan er rökrétt afleiðing af ójafnri þróun
auðvaldsins í heiminum og auðvaldsherrarnir veita
henni framgang vegna þess að markmið þeirra er:
Að standa sig í samkeppninni við auðvald og ein-
okunarauðvald annarra landa. Þessi samkeppni
þvingar fram samþjöppun fjármagnsins og heimtar
nýja og stærri markaði.
HEIMSVALDASTEFNAN ÞRÓAST
Einokunarhringarnir eru ætið á veiðum eftir meiri
arði, eins mikilli arðaukningu og mögulegt er, til
þess að geta staðið sig i samkeppninni. Stóru og
ríku fyrirtækin keyptu smám saman upp þau minni
og fátækari sem ekki stóðust samkeppnina.
I lok síðustu aldar voru orðnir til geysistórir auð-
hringar, sem sameinaðir voru bankaauðvaldinu.
Auðhringarnir gátu orðið ráðið markaðsverðinu og
við það fengu þeir nær algera einokun, hver á sin-
um markaði. — Krupp í Þýzkalandi, Rockefeller i
Bandarikjunum. — Upp úr aldamótunum hefst
grimmileg innbyrðis samkeppni á milli auðhring-
anna. Það sem mest var um vert var að fjárfesta
þar, sem ágóðinn var mestur. Afleiðingin af þessu
varð hið ægilega kapphlaup landanna i Evrópu og
Bandaríkjunum um að útvega sér nýlendur. Þar
gátu einokunarhringarnir fjárfest í hráefnum og ó-
dýru vinnuafli. Heiminum hafði verið skift upp í
áhrifasvæði auðhringanna.
HEIMSSTYRJALDIR OG
ENDURSKIPTING HEIMSINS
Um 1900 var allur heimurinn skiftur á milli rikja
heimsvaldasinna. En baráttu auðvaldsins um áhrifa-
og arðránssvæði var ekki lokið þrátt fyrir það. Þró-
unin í auðvaldslöndunum varð langt frá því jöfn,
og það landið, sem lengst var komið í auðvalds-
þróuninni varð að lita í kringum sig eftir nýjum
svæðum til að fjárfesta á og nýjum mörkuðum til
að selja vöru sina, til þess að ekki yrði um stöðn-
un að ræða.
En það sem heimurinn var þá þegar skiptur i
áhrifasvæði, varð afleiðingin sú að auðhringarnir
voru i stöðugri baráttu um að skipta heiminum
upp á nýtt. Tvisvar hefur þetta leitt til heims-
styrjalda.
Árið 1913 skrifar málgagn þungaiðnaðarins í
Þýzkalandi: „Hvað sem það kostar — jafnvel stríð
— verður að útvega nýja útflutnings- og sölu-
markaði." (Berliner Neuste Nachrichten).
Á árunum eftir fyrri heimsstyrjöldina varð alvar-
legur skortur á hráefnalindum og mörkuðum fyrir
þýzkt einokunarauðvald. Þýzku auðhringarnir
studdu þess vegna Hitler og báru hann fram til
valda. Á dögum Hitlers og nazismans í Þýzkalandi
sýndi einokunarauðvaldið að það eru ekki til nein
takmörk fyrir því hvernig arðránsþorstanum skal
svalað.
Krupp, I. G. Farben o. fl. byggðu verksmiðjur í
tengslum við einangrunarbúðir nazista. Gyðingar
og striðsfangar unnu við kjör, sem voru óbjóðandi
lifandi verum, þar til þeir létust.
Heimsvaldastefnan og hagsmuni alþýðunnar eru
eins og eldur og vatn.
Heimsvaldasinnar og alþýða allra landa eiga
enga hagsmuni sameiginlega. Alþýðan vill frið og
sjálfsákvörðunarrétt fyrir þjóð sina til þess að geta
þróað land sitt. Heimsvaldasinnar óska eftir og
vilja auka arðrán sitt og bæta aðstöðu sína til kúg-
unar. Tímabil heimsvaldastefnunnar einkennist af
grimmilegum ránstyrjöldum, af miklu rikidæmi fárra
og algerri fátækt margra.
EBE — HEIMSVALDASINNAÐ
EFNAHAGSBANDALAG
Upphaf EBE —
Eftir síðari heimsstyrjöldina lá Evrópa í rústum,
en Bandaríkin voru þá sterkari en nokkru sinni áður
og höfðu grætt ógrynni fjár á styrjöldinni. Breyting-
ar urðu miklar á heimskerfi auðvaldsins á stuttum
tima. Auðvaldið tapaði miklum mörkuðum, við að
lönd rifu sig úr klóm þess og öðluðust efnahags-
legt freisi eða treystu á efnahagsstuðning Austur-
Evrópulandanna. Byltingin í Kína varð alvarlegasta
áfallið fyrir auðvaldsheiminn.
29