Réttur - 01.01.1973, Síða 32
ræða jarðoliu, þar sem tryggja verður öflun hráefn-
anna .... með því að tryggja og treysta aðgang-
inn að margvíslegum hráefnalindum utan landa-
merkja EBE." („Die Zeit“).
Brandt óskar eftir að stækka EBE og EBE óskr
ar eftir fleiri hlýðnum vanþróuðum löndum til að
drottna yfir. EBE-löndin eru öll gömul nýlenduveldi,
en í dag er það aðeins franska ríkjasambandið,
sem EBE hefur einhver yfirráð yfir.
Með nýlendum Stóra-Bretlands og með Spán
og Portúgal sem aðila (viðræður við þau ríki standa
yfir) getur EBE lagt grundvöllinn að heimsveldi
sínu, heimsvaldi því sem auðjöfrana í Evrópu
dreymir um. Á hærri stöðum í auðvaldskerfinu, er
ekki lengur talað um 6 eða 10 lönd í EBE, heldur
um hin 60 EBE-lönd.
EBE OG STRÍÐ
Til þess að tryggja ríkidæmi sitt hafa EBE-löndin
þurft að reka blóðug kúgunarstríð. I dag stendur
stækkað EBE beint eða óbeint að baki styrjaldar-
rekstri í Tsjad, Mosambique, Angola, Guinea-
Bissao í Afriku og Dhofar og Alþýðulýðveldinu
Suður-Jemen á Arabíuskaga.
Hve mörg Víetnam skyldi EBE eiga eftir að búa
til i Afríku?
Heimsvaldasinnarnir í Bandaríkjunum líta þróun
EBE óblíðum augum. Fóstrið er vaxið fóstra sínum
Sámi um höfuð i Evrópu og vill nú verpa eggjum
sínum í hreiður fóstra síns í öðrum heimshlutum.
Auðlindum Bandaríkjanna er ógnað frá tveim
hliðum: frá þjóðfrelsishreyfingum kúguðu landanna
og frá öðrum heimsvaldasinnum sem eru á góðri
leið með að sigla fram úr Bandarikjunum á heims-
markaðnum.
Tafla: Hlutar USA og EBE + St.Br. i brúttó þjóð-
arframleiðslu heimsins.
Br. þj.fr.l . heims Bílaframl. Stál
1950 1970 1950 1970
USA 50% 30% 76% 46% 20%
EBE 11% 30% 14% 21% 21%
Japan 2% 17%
Einokunarauðhringar EBE vilja ekki aðeins úti-
loka USA frá Afríku og Evrópu. V-þýzkt fjármagn
hefur haldið innreið sina inn i Latnesku-Ameríku
og Asíu.
EBE er ennþá veikari aðilinn. I gjaldeyriskrepp-
unni 1971 varð EBE að taka þátt í að borga krepp-
una, sem dundi yfir bandaríska auðhringa. I stað
þess að láta hart mæta hörðu, beygði EBE sig
og hjálpaði Bandarikjunum. Hvers vegna?
EBE gat ekki látið hart mæta hörðu af tveim
orsökum: Bandaríkin eru eitt riki með eitt rikisvald,
en EBE eru mörg riki. Bandaríkin hafa sterkan her
undir einni stjórn (rikisins), EBE hefur ekki her
(þó að EBE-löndin hafi öll sína heri).
EVRÓPURÍKIÐ
„Það er alltaf forseti, sem talar fyrir hönd
Bandaríkjanna og getur látið framkvæma það sem
búið er að samþykkja. En við höfum engan, sem
getur talað fyrir hönd EBE með sama valdi ....
Tíu atkvæði fyrir Evrópu eru niu atkvæðum of
mikið." (VISION, evrópskt viðskiptatimarit).
Á þennan hátt sér Dahrendorf „utanríkisráð-
herra" EBE fyrir sér þróunina í EBE. Ef EBE á að
geta veitt Bandarikjunum samkeppni verður EBE
að sameina allt pólitískt vald í eitt RÍKI. Þess vegna
var Werner-áætlunin gerð. En hún gerir ráð fyrir
að allar þjóðlegar efnahagsráðstafanir verði lagð-
ar niður. Allar efnahagsáætlanir, fjárlög o. s. frv.
skulu vera gerðar af EBE fyrir heildina, eins og
um eitt land væri að ræða.
Þess vegna var lögð fram áætlun um sameigin-
lega utanrikispólitík. Einmitt nú flýtir EBE sér að
byggja upp sameiginlega pólitik á öllum sviðum.
Það sem eftir er af þjóðareinkennum, menningu
o. s. frv. er á góðri leið með að hverfa.
En riki án valdatækis er eins og tré án róta.
Willy Brandt orðar þetta: „Þegar hin pólitíska sam-
vinna nær ákveðnu marki, er það rökrétt afleiðing
að þessi lönd (EBE-löndin) færist einnig saman á
sviði varnarmála. Hitt hlutverkið er það, sem kjarn-
orkuvopnaundirstaða sú, sem tvö EBE-landanna,
England og Frakkland, ráða yfir, mun hafa."
Hvers vegna er þetta „rökrétt" eins og Brandt
segir? Til hvers á að nota Evrópuherinn?
Tvö dæmi: Skriðdrekar hafa nú þegar verið not-
aðir gegn verkamönnum i Belgíu í verkfalli. Árið
1968 beitti De Gaulle frönskum kjarnasveitum úr
Þýzkalandsherdeildinni, gegn stúdentum og verka-
mönnum. Það var ekki hægt að „treysta" hinum
venjulega franska hermanni.
Alþýðan I EBE-löndunum sýnir æ aukinn baráttu-
32