Réttur


Réttur - 01.01.1973, Qupperneq 51

Réttur - 01.01.1973, Qupperneq 51
milli þarf að vera á öllum stigum hinnar félagslegu uppbyggingar, allt frá vinnustöðvaeiningum og til þeirra er skipa trúnaðarstöður hverju sinni. Að ytra formi og uppbyggingu er Alþýðubanda- lagið að flestu leyti sambærilegt öðrum stjórnmála- flokkum. Það sem skilur á milli felst í starfsaðferð- um, viðhorfum til fjöldahreyfinga alþýðunnar og sókn flokksins út fyrir ramma þjóðskipulagsins. Glæða þarf þá vitund hjá flokksmönnum, að þeir hafi veigamiklum verkefnum að gegna, þar sem hver og einn hefur sína ábyrgð. Hinir óbreyttu flokksmenn láta ekki skrá sig inn í Alþýðubanda- lagið fyrir siðasakir og sem formsatriði, eins og oft vill verða hjá öðrum flokkum, heldur vegna ásetnings þeirra að starfa að almennustu hags- munamálum verkalýðsstéttarinnar og að umbreyt- ingu þjóðfélagsins til þess menningarríkis, þar sem maðurinn er mælikvarði allra hluta. Þeir sem til forustu veljast hjá Alþýðubandalaginu eða eru fengin trúnaðarverkefni á vegum flokksins eru ekki stjórnmálamenn í þeim skilningi, sem borg- araflokkarnir hafa gefið því orði. Borgaralegur stjórnmálamaður er málsvari sérhagsmuna og minnihlutahópa, og hann verður yfirleitt sjálfur að valdstofnun í þjóðfélaginu. Trúnaðarmenn sósíalísks verkalýðsflokks keppa ekki að völdum sjálfum sér til handa og ekki einu sinni fyrir flokkinn nema sem stundarfyrirbrigði, heldur stefna þeir að því að fólkið sjálft fái vald yfir lífsskilyrðum sínum. Vitan- lega starfa þeir að því, eins og aðrir stjórnmála- menn, að tengja saman persónur, hópa og hug- myndir. Og vegna hins þjóðfélagslega tilgangs þurfa tengsl þerira við almenning — ekki aðeins takmarkaðan hóp flokksféiaga, heldur við hinn al- menna óflokksbundna mann — að vera miklu nán- ari og fjölbreyttari en gerist hjá borgaralegum stjórnmálamönnum. Þetta er undirstrikað með því, að félagar I sósíalískum verkalýðsflokki eru sem heild skipulagslega hærra settir en nokkur sá sem annast trúnaðarstörf fyrir flokkinn, innan hans eða út á við. Alþýðubandalagið gegnir tvíþættu hlutverki: Ann- ars vegar miðar það starf sitt við núverandi þjóð- félagsgerð og tekur fullan þátt i stjórnmálastarfi á þeim vettvangi sem þjóðfélagið ætlast sérstaklega til að sé leikvöllur stjórnmálaflokkanna. Hins vegar felst í Alþýðublandalaginu ögrun við ríkjandi þjóð- félagsgerð, þaö viðurkennir ekki réttmæti hennar °g sættir sig ekki við gildismat hennar. Framtið- armark flokksins liggur handan við þjóðfélag kapít- alismans. Það er svo mælikvarði á hugmyndafræði- legan og pólitískan styrk og þroska flokksins, hve vel honum tekst að kveikja saman dægurmál og baráttuna fyrir sósíalismanum. Hugsjónir sósíalismans minna á, að menn eru skapendur sinnar eigin sögu. Það er hlutverk Al- þýðubandalagsins að gera þær hugsjónir að virku afli i baráttu almennings fyrir breyttum lifsskilyrð- um og nýju þjóðskipulagi. Flokkurinn þarf að standa föstum fótum í jarðvegi íslenzkrar sögu og þjóðmenningar, en jafnframt þarf hann að fylgjast með því sem gerist I verkalýðsbaráttu og I sósíal- ískum hreyfingum um víða veröld. 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.