Réttur - 01.01.1973, Síða 63
23. janúar: Um kl. 2 um nóttina tekur
að gjósa á Heimaey. Nýtt fjall myndast
sem senn verður hærra en Helgafell. Nær
allir Vestmannaeyingar fluttir á land strax
um nóttina. Mörg íbúðarhús í Eyjum verða
eldi að bráð, en fleiri skemmast vegna gjall-
falls. Þjóðarbúið allt verður fyrir verulegu
tjóni. Atvinnutæki ekki nothæf í Eyjum í
vetur. Eyjamenn sjálfir missa eignir sínar
margir hverjir og búa við óvissuástand.
1. febrúar: Ríkisstjórnin hefur samið frum-
varp til laga um fjáröflun til Viðlagasjóðs
vegna náttúruhamfaranna í Eyjum. Tekju-
stofnar sjóðsins verði m.a. þannig að launa-
menn fresti kauphækkun sinni sem koma á
til framkvæmda 1. marz — 6—7% um sex
mánuði en andvirði greiði atvinnurekendur
í sjóðinn. Ennfremur greiði sjómenn, bændur
og atvinnurekendur sérstök gjöld til viðlaga-
sjóðs. (Sjá Þjóðviljann 2/2 1973). Þetta
frumvarp fær samþykki allra í ríkisstjórninni,
allra þingflokka stjórnarinnar í heild nema
tveggja manna í þingflokki frjálslyndra.
Björn Jónsson forseti ASI er annar þeirra
andvígu. Ríkisstjórnin leggur því til að kos-
in verði 7 manna nefnd á alþingi sem geri
tillögur um Viðlagasjóðinn. Það er samþykkt
og nefndin leggur síðan fram frumvarp um
2.000 milj. kr. fjáröflun til sjóðsins. Nánar
verður sagt frá því máli og öðrum fjárhags-
vandræðum í tengslum við náttúruhamfar-
irnar í næsta hefti Réttar.
2. febrúar: Dómstóllinn í Haag kveður
upp þann úrskurð að hann eigi lögsögu í
landhelgismálinu. Því er strax lýst yfir af rík-
isstjórninni að úrskurður þessi breyti engu
um afstöðu Islendinga, enda höfum við sagt
upp nauðungarsamningunum frá 1961 með
löglegum fyrirvara.
9. febrúar: Málstaður Islands í landhelgis-
málum hlýtur stuðning í Bandaríkjunum.
22. febrúar: Þing Norðurlandaráðs í Osló
samþykkir að skora á ríkisstjórnir Finnlands,
Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar að veita
sem svarar 1500 miljónum íslenzkra króna
til stuðnings Islendingum vegna hamfaranna
í Eyjum. Greiði Finnar, Norðmenn og Dan-
ir 20% aðstoðarinnar hver, en Svíar 40%.
Þetta er langsamlega stærst allra erlendra
framlaga sem borizt hafa vegna hamfaranna
á Heimaey.
63