Réttur - 01.07.1977, Blaðsíða 1
léttur
60. árgangur
1977 - 3. hefti
Réttur er að þessu sinni að mestu helgaður stefnu og starfsháttum Alþýðu-
bandalagsins. Er lesendur tímaritsins fá það í hendur mun fjórði landsfundur
Alþýðubandalagsins í þann mund að hefjast. Réttur vill stuðla að opinni um-
ræðu um stefnumótun Alþýðubandalagsins sem sósíalísks verkalýðsflokks.
Hringborðsumræðan í þessu hefti er veigamikið innlegg í þá umræðu. Á
þessum landsfundi verður Alþýðubandalagið að móta þá gifturíku stefnu i
þjóðfrelsismálum, verkalýðsmálum og atvinnumálum er fylki öllu einlægu
vinstra fólki um þennan einingarflokk alþýðu. Um leið og Alþýðubandalagið
samþykkir á landsfundi, hvaða baráttuleið skuli valin, þá þurfa flokksmenn
að velja Alþýðubandalaginu nýja forystu. Það eru því stór verkefni er bíða
landsfundarfulltrúa, en allir sósíalistar og aðrir verkalýðssinnar vænta þess
að verk landsfundar leiði til öflugra flokksstarfs og Alþýðubandalagið gangi
til næstu orustu sem það baráttutæki er eitt dugar í viðureigninni við aftur-
haldsöflin, verði einingartákn vinstri þróunar.
★
Bandalag starfsmanna ríkis og bæjar - BSRB - hefur háð sína eldskírn í
stéttabaráttunni. Tveggja vikna verkfall opinberra starfsmanna í október
s. I. staðfesti gildi samtakanna í íslenskri verkalýðsbaráttu. Innan vébanda
BSRB er mikill fjöldi láglaunafólks sem á fulla samleið með félagsmönnum
í almennum verkalýðsfélögum. En umfram allt sýndi BSRB í verkfallinu þann
baráttuvilja og þá félagslegu virkni, sem ætti að kenna gamalreyndum verk-
fallsmönnum vissan lærdóm. En verkfallið sýndi einnig vel veilurnar í sam-
tökum opinberra starfsmanna. í þessu fyrsta verkfalli BSRB voru afhjúpuð
þau tengsl og það valdakerfi sem handhafar ríkisvaldsins og íhaldskerfi
Reykjavíkur ræður. Það hefur undirtök í auðmjúkri forystusveit borgarstarfs-
manna, er reyndist Trojuhesturinn í röðum BSRB.
Starfsmenn hins opinbera fengu nú í fyrsta sinn að njóta þeirra sjálfsögðu
mannréttinda að hafa heimild til að leggja niður störf, ef þeir sættu sig ekki
við söluverðið á vinnuafli sínu. En viðsemjandinn að þessu sinni íhaldsöflin
í ríkisstjórninni virtist staðráðinn í að beita BSRB hörðu og helst brjóta al-
gerlega niður samstöðuna meðal opinberra starfsmanna. Ekki var að undra
þó íhald og framsókn teldi sig hafa þau undirtök í því embættismannaliði
14