Réttur - 01.07.1977, Blaðsíða 17
ABS: Ég vil gjarna byrja á stefnumót-
uninni og íslenskri atvinnustefnu áður
en ég kem að fræðslumálunum. I fyrra-
vetur var það mjög áberandi livað það
var vaxandi þungi í áróðri fyrir erlendu
kapítali inn í landið. Þá verður viðbragð-
ið það að við ákveðum m. a. að gefa út
myndarlegt aukablað af Þjóðvifjanum
til þess að sýna fram á að annar mögu-
leiki sé í'yrir hendi. Það lrefur alltaf verið
okkar stefna að vera virkir þátttakendur í
uppbyggingu á þeim atvinnugrundvelli
sem samfélagið á íslandi livílir á. Við
erum engan veginn á þeirri skoðun að
við eigum að standa utan við þetta og
ekki taka þátt í atvinnuuppbyggingu fyrr
en eignarhald og félagsskipun er orðin
okkur að skapi. Við segjum að blómlegt
atvinnulíf í höndum okkar íslendinga
sjálfra sé algjör forsenda fyrir því að við
getum breytt okkar þjóðfélagi eins og við
viljum breyta því. Að gela þessari gömlu
og góðu stefnu heitið „íslensk atvinnu-
stefna“ var frábær blaðamennska, ein-
hver besta fyrirsögn sem búin hefur verið
til á Þjóðviljanum um langan tíma, en
hún hefur valdið jrví að sumir flokks-
menn halda jrað að þarna hafi allt í einu
á bak við Jrá verið búið til eitthvað spá-
oýtt en jrað var alls ekki gert. Aftur á
móti erum við núna á mjög iýðræðisleg
an hátt að móta beina framkvæmdastefnu
í jressum atriðum. Það gerist þannig að á
vegum framkvæmdastjórnar var í sumar
unnið að Jrví að setja upp drög að efnis-
tannna að okkar atvinnn- og efnahags-
málastefnu. Þetta er rætt í framkvæmda-
stjórn og í miðstjórn og síðan er allmynd-
arlegt plagg sent út núna til allra flokks-
iélaga til þess að þau geti fjallað um
þetta áður en það kemur fyrir landsfund
og landsfundur tekur síðan hina endan-
legu ákvörðun um jrá rannsóknar- og
skipulagsvinnu, senr jiarna er búið að
Iramkvæma í allt sumar og allt haust,
lyrst af vinnuhópi, síðan af öllum al-
menningi og sérstökum stjórnum hjá
okkur og væntanlega að lokurn af ein-
hverjum vinnuhópi sem vinnur úr Jæssu
öllu sarnan. Þetta fannst mér gott dænri
sem nota megi framvegis um jrað hvernig
eigi að vinna á lýðræðislegan hátt að
stefnumótun.
161