Réttur - 01.07.1977, Blaðsíða 41
EINAR OLGEIRSSON:
AFLIÐ SEM ALDIRNAR
SKEIÐRÍÐA LÆTUR
Hugleiðing á 60 ára afmæli
rússnesku byltingarinnar
Þegar bolshevikkar höfðu haldið
völdunum í rúma þrjá mánuði eftir bylt-
inguna 7. nóv. 1917, sagði Lenín við einn
nánasta samstarfsmann sinn: „Nú höfum
við staðið okkur vel, Iialdið völdunum
lengur en Parísarkommúnan."
Það er erfitt fyrir nútíma kynslóð að
gera sér í hugarlund, í hve veikum þræði
líf rússnesku verklýðsbyltingarinnar
Iiékk fyrstu árin, — nú 1977, þegar núlif-
andi menn sjá flestir aðeins sovéska stór-
veldið.
Því fór fjarri að jafnvel hinir bjartsýn-
ustu létu sig dreyma um varanlega valda-
töku verkalýðs í upphafi þessarar aldar.
Þe gar Jack London ritar „Járnhæl inn“
1912 sér hann fram undan í þessari stór-
fenglegu skáldsögu sinni, aldalanga kúg-
un verkalýðsins, þar sem auðvaldið bælir
niður hverja verkalýðsuppreisnina af
annarri, kæfir þær í blóði, traðkar þær
undir fasistiskum jámhæl sínum og
steypir hverri stjórn, sem alþýðan mynd-
ar.
Það vantaða heldur ekki viljann hjá
hatrömmustu auðvaldsherrunr allra stór-
velda til að taka höndum saman og berja
niður verklýðsbyltinguna í Pétursborg
og Moskvu, en hætta sínu stórveldastríði
á meðan.
Bismarck hafði 1871 hjálpað frönsku
ríkisstjórninni, þótt hann ætti í stríði við
185