Réttur - 01.07.1977, Side 45
og Afríku, — og nú siðast sigur fátækrar
alþýðu í Víetnam á sjálfum Bandaríkjun-
um (— ekki hvað síst í krafti sovéskra
vopna, þó hetjuskapur þess fólks, er bar
þau væri úrslitaatriðið) — okkur er lífs-
nauðsyn að gera okkur — og öðrum
ijóst, — að upphafið að þessari sigur-
för, — sem getur gert 20. öldina að öld
sósíalismans, ef rétt er á haldið, — upp-
hafið er sigur sovétbyltingarinnar í nóv-
ember 1917. Og sá veldur miklu, er upp-
hafinu veldur.
II
Stórveldið og draumsjónin
Verkalýðsbyltingin í Rússlandi tókst,
— olli aldahvörfum í mannkynssögunni.
Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna
gerði sér ljóst, — eftir að uppreisnir og
byltingar alþýðu í nágrannalöndunum
höfðu verið kæfðar í blóði — að Sovét-
ríkin stóðu ein gagnvart öllum auðvalds-
heiminum — og þau yrðu að vera sterk,
verða vald, verða iðnvætt stórveldi — eða
falla fyrr eða síðar.
Sovésk alþýða iðnvæddi og hervæddi
land sitt, gerði það að stórveldi. í tvígang
vofði árásarstríð auðvaldsheims yl'ir
henni. í fyrra skiptið varð það blóðugasta
barátta mannkynssögunnar: sovétþjóðirn-
ar fórnuðu 20 miljónum manna til að
brjóta hervél þýska fasismans — frarn til
þess ósigrandi — á bak aftur. Og flakandi
í sárum reisti hún land sitt úr rústum,
þegar síðari árásarhættan vofði ylir: ógn-
un stórmennskubrjálaðs Bandaríkjahers,
einokandi atomsprengju — og liélt sig
því herra heims.
En einokunin á atomsprengjunni var
tofin, það jafnvægi óttans skapað, sem
Við enn búum við. Byltingar í Kína,
Austur-Evrópu, Kúbu ,gerbreyttu andliti
hnattarins. Allt að 40% jarðarbúa lifa í
þjóðfélagi þar sem valdagrundvöllun er
lagður að framkvæmd sósíalisma í mis-
munandi mynd. Auðvald Bandaríkjanna
— með sínar þúsund herstöðvar umhverf-
is Sovétríkin — þorði ekki að leggja til
þeirrar atlögu ,er upphaflega var fyrir-
huguð. Þetta auðvald reyndi með eitri og
hverskonar drápstækjum að brjóta bylt-
inguna í Víetnam á bak aftur — og tap-
aði.
Eldmóður mikils liluta sovéskrar al-
þýðu og fórnir hennar allrar við að vinna
hin heimssögulegu afrek þessara 60 ára
mega aldrei gleymast né vanmetast, þótt
það mikla vald, er hún veitti foringjum
sínum hafi á vissum skeiðum verið notað
til kaldrifjaðra fólskuverka gegn tugþús-
undum kommúnista. Jafnt með málaferl-
unum illræmdu sem innrásinni í Tékkó-
slóvakíu var settur smánarblettur, sem
reynt er að klína á sósíalismann, — og
loðir við meðan ekki er framsett og
viðurkennd marxistisk skýring á orsök-
um þessa atferlis og þeir, sem saklausir
mistu heiður og líf, hafa fengið aftur
þann sess í sögu sósíalismans, sem þeim
ber, — og þær misgerðir, sem enn er hægt
að bæta, að fullu bættar. („Réttur“ hefur
reynt að sínu leyti að setja fram marxist-
iskar skýringar á þessum harmleikjum
sósíalismans og skipa þeim sósíalistum, er
fórnað var, þann sess, er þeim ber).3
Sumir myndu ef til vill orða það svo
að draumsjón sósíalismans hefði lifað í
Sovétríkjunum og fleiri sósíalistiskum
ríkjum í lmeykslanlegri sambúð við of-
stæki og vald er til illverka var beitt, en
rauð skikkja hugsjónarinnar breidd yfir
þau hermdarverk til að reyna að dylja.
En svo mjög sem sósíalistar liarma slíkt
189