Réttur - 01.07.1977, Side 61
Parti), sem eru taldir Mao-istar, og fengu
14.109 atkvæði, eða 0,6%.
Tito í Moskvu og Peking
Ferð Títos til Moskvu, Peking og
Norður-Kóreu í haust er sögulegur at-
burður í alþjóðahreyfingu kommúnista.
Að vísu heimsækir hann Peking fyrst og
lremst sem forseti Júgóslavíu, en þó er
álitið að sú heimsókn muni ryðja braut-
ina fyrir því að flokkarnir í júgóslavíu
og Peking taki upp eðlileg sambönd sín á
milli.
I’egar minnst er þeirra fordæminga,
sem Títo og „títoisminn" hlaut 1948 og
svo aftur, Jrrátt fyrir skynsamlega tilraun
Krustoffs til sátta eftir dauða Stalíns, for-
dæmingarinnar á alþjóðafundum komm-
únistaflokkanna í Moskvu 1957 og 1960,
sem kínverski flokkurinn stóð jafnvel
enn framar að en Kommúnistaflokkur
Sovétríkjanna Jrá, Jrá fer ekki hjá Jrví að
Jreir marxistar, svo sem við hér, sem
aldrei vildu taka þátt í fordæmingunni á
„títoismanum", gleðjist yfir Jrví að vold-
ugustu kommúnistaflokkar heims skuli
nú — að vísu hver í sínu lagi — vera að
hverfa frá gamalli villu síns vegar og taka
upp vinsamleg samskipti við þann, er
forðum var útskúlað. — Vonandi er Jrað
og forboði Jress að ekki líði alltof mörg
ár áðnr en Jressir voldugu flokkar sjálfir
fari að líta hvor annan réttu auga.
Vestur-Þýskaland
Vestur-þýskaland fetar nú hægt en ör-
ugglega leiðina til harðstjórnar — auð-
vitað undir Jrví yfirskyni að vera að
vernda lýðræðið.
„Bernfsverbot", — lögbann við að hafa
kommúnista eða þá, sem þeim standa
nærri, í opinberri Jrjónustu, — hefur þeg-
ar leitt til ofsókna, sem minna á „Mac-
carty“-ismann í kalda stríðinu. Lestar-
stjóri — járnbrautirnar eru ríkiseign —
er dæmdur frá vinnu sinni fyrir að vera
kommúnisti. Alræmt hefur orðið mál
Sylvíu Gingold. Hún var kennari, for-
eldrar hennar störfuðu af mikilli fórn-
fýsi gegn nasismanum. Hún er dærnd frá
kennarastörfum fyrir skoðanir sínar. —
En Kappler, múgmorðinginn og nasist-
inn, sem komst úr fangelsi á Italíu til
Vestur-Þýskalands, situr Jrar í náðum, lík-
lega á eftirlaunum. Það er ljóst hvert
stefnir.
Svo ætlar allt vitlaust að verða í Jressu
griðlandi fasistiskra fjöldamorðingja, el
leynifélög, er taka sér róttæk nöfn og
beita glæpsamlegum aðferðum að hætti
fornra afturhaldsmorðingja (svo sem
þeirra er myrtu Rósu Luxenburg), ræna
iðjuhöldum eins og Scldeyer nú, og
heimta l'élaga sína úr fangelsi ,ei þeir eigi
að þyrma lífi hans. — Þarmeð gefa Jaessir
ofstækismenn, fjandsamlegir ríkisvald-
inu, ofstækisherrum yfirstéttarinnar kær-
komna átyllu til að stórefla kúgunartæki
ríkisvaldsins, afnema ýms mannréttindi,
sem trygð voru áður ákærðum, m. ö. orð-
um: gera Vestur-Þýskaland að lögreglu-
ríki. Og Jretta Iand er hernaðarlega og
ljárhagslega sterkasta Natoríki Evrópu,
Jrykist standa með lýðræði, en tignun á
Hitler, og nasismanum fer Jrar dagvax-
andi, kvikmyndir og bækur um múg-
morðingjann mikla ná æ meiri vinsæld-
um fjöldans, enda hafa yfirvöld Vestur-
Þýskalands frá upphafi leynt uppvaxandi
kynslóð glæpaferli nasismans og hers-
höfðingjar úr her Hitlers verið æðstu
menn Nato.